Súrdeigspítsa með chili og ristuðum möndlum

Þessi er alveg svakalega góð! Súrdeigspítsa með chili og ristuðum …
Þessi er alveg svakalega góð! Súrdeigspítsa með chili og ristuðum möndlum. mbl.is/Snorri Guðmundsson

Synd­sam­lega góð pítsa – þar sem Ind­land og Ítal­ía mæt­ast og trylla bragðlauk­ana. Hér í boði Snorra hjá Mat og myndum.

„Það verða ein­hverj­ir töfr­ar til þegar tikka masala-sós­an, bráðinn mozzar­ella­ost­ur­inn og kryddaður kjúk­ling­ur­inn bland­ast sam­an á súr­deig­spít­su­botn­in­um. Ég mæli ofsa­lega mikið með því að fólk fjár­festi í pítsu­steini ef það er fyr­ir það að gera pítsu heima hjá sér. Gæðin á pítsun­um ykk­ar munu rjúka upp, treystið mér! Ef pítsu­steinn er ekki á heim­il­inu má nota bök­un­ar­plötu en hitið hana þá samt fyrst í ofn­in­um áður en píts­an er sett á plöt­una,“ seg­ir Snorri.

Súrdeigspítsa með chili og ristuðum möndlum

Vista Prenta

Súr­deig­spít­sa með chili og ristuðum möndl­um

  • Súr­deig­spít­su­deig, 300 g / ég notaði deigið frá Brikk
  • kjúk­linga­læri, 180 g / 2 læri
  • tandoori masala-krydd­blanda, 0,5 msk / Krydd­húsið
  • heil­ar möndl­ur, 2 msk
  • tikka masala-sósa, 120 ml / frá Patak
  • mozzar­ella rif­inn, 120 g
  • rauðlauk­ur, eft­ir smekk
  • ferskt chili, eft­ir smekk
  • kórí­and­er, eft­ir smekk

Aðferð:

  1. Takið deigið úr kæli 2 klst áður en byrjað er að elda.
  2. Leggið kjúk­linga­læri í skál ásamt 1 msk af olíu, tandoori-krydd­blöndu og svo­litlu salti. Láið mar­in­er­ast í 20-30 mín.
  3. Leggið kjúk­ling­inn á ofn­plötu með bök­un­ar­papp­ír og bakið við 200°C á blæstri í um 30 mín. eða þar til kjúk­ling­ur­inn er orðinn fal­lega brúnaður. Komið möndl­un­um fyr­ir á ofn­plöt­unni með kjúk­lingn­um þegar um 7 mín. eru eft­ir af eld­un­ar­tím­an­um.
  4. Rífið kjúk­ling­inn í sund­ur með tveim­ur göffl­um og saxið möndl­ur gróf­lega. Sneiðið rauðlauk í strimla.
  5. For­hitið pítsu­stein (eða ofn­plötu) í botn­in­um á ofni upp í 250°C með yfir- og und­ir­hita.
  6. Notið hend­urn­ar til þess að fletja pítsu­botn­inn út í um 28 cm hring og leggið svo á bök­un­ar­papp­ír. Best er að vinna út frá miðju deigs­ins í átt að kant­in­um og reyna að hlífa um 2 cm af kant­in­um við sem mestu hnjaski, en þannig er gasinu ýtt út í kant­inn sem verður til þess að hann lyft­ist mun bet­ur.
  7. Dreifið tikka masala-sósu yfir botn­inn og svo mozzar­ella­osti yfir. Dreifið kjúk­lingi, rauðlauk og ristuðum möndl­um yfir og bakið pítsuna svo í 8-10 mín. eða þar til kant­arn­ir eru fal­lega gyllt­ir.
  8. Sneiðið chili í sneiðar og saxið kórí­and­er. Dreifið yfir pítsuna eft­ir að hún er skor­in í sneiðar.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert