Trylltar Oreo trufflur með Rolo-fyllingu

Geggjaðar nammikúlur sem þú þarft ekki að baka.
Geggjaðar nammikúlur sem þú þarft ekki að baka. mbl.is/ Fitwafflekitchen/Instagram

Gjörið svo vel gott fólk! Hér eru tryllt­ar Oreo truffl­ur með Rolo-fyll­ingu sem inni­halda ein­ung­is fjög­ur hrá­efni.

Upp­skrift­in kem­ur frá Eloise Head sem geng­ur und­ir nafn­inu FitWaffle Kitchen á In­sta­gram með yfir 160 þúsund fylgj­end­ur. Hér er eng­in þörf á nein­um meist­ara­tökt­um því upp­skrift­in gæti ekki verið ein­fald­ari.

Trylltar Oreo trufflur með Rolo-fyllingu

Vista Prenta

Tryllt­ar Oreo truffl­ur með Rolo-fyll­ingu

  • 10 Oreo kex­kök­ur
  • 60 g rjóma­ost­ur
  • 130 g mjólk­ursúkkulaði
  • 7 Rolobit­ar

Aðerð:

  1. Myljið Oreo í mat­vinnslu­vél. Einnig er hægt að mylja kexið í poka með köku­kefli. Geymið smá­veg­is af mylsn­unni til skrauts.
  2. Blandið sam­an mylsn­un­um við mjúk­an rjóma­ost­inn.
  3. Takið te­skeið af blönd­unni og fletjið út. Setjið Rolobita inn í og rúllið upp í kúlu. Leggið kúl­urn­ar á bök­un­ar­plötu og setjið í frysti í 20 mín­út­ur þar til kúl­urn­ar verða harðar.
  4. Bræðið mjólk­ursúkkulaðið og dýfið kúl­un­um ofan í þannig að súkkulaðið þeki kúl­urn­ar. Leggið á bök­un­ar­papp­ír á bök­un­ar­plötu.
  5. Stráið Or­eomylsn­um yfir kúl­urn­ar og setjið inn í ís­skáp til að harna áður en borið er fram.
Oreo trufflur, fylltar með Rolo.
Oreo truffl­ur, fyllt­ar með Rolo. mbl.is/ Fitwafflekitchen/​In­sta­gram
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert
Loka