Haustsúpan sem Hildur Rut elskar

Stórkostleg tómatsúpa í haustlægðinni.
Stórkostleg tómatsúpa í haustlægðinni. mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir

Það hef­ur ekki farið fram­hjá nein­um að haustið hef­ur bankað á dyrn­ar og þá jafn­ast fátt á við bragðgóða tóm­atsúpu með fersk­um mozzar­ella og basilíku. Og þessi er ein­stak­lega góð!

Súp­an er í boði Hild­ar Rut­ar sem seg­ist alltaf sjúk í súp­ur á haust­in. „Þessi tóm­atsúpa inni­held­ur gul­ræt­ur sem ger­ir súp­una ein­stak­lega góða. Topp­ur­inn yfir i-ið er að rífa fersk­an mozzar­ella og dreifa yfir súp­una rétt áður en þið borðið hana. Svaka­lega gott. Ég kaupi minn mozzar­ella í Costco, hann er mjúk­ur og mjög bragðgóður þar. Mæli með að bera þetta fram með góðu brauði.“

Haustsúpan sem Hildur Rut elskar

Vista Prenta

Yndis­auk­andi tóm­atsúpa (fyr­ir 3-4)

  • 1/​2 lauk­ur
  • 4-5 gul­ræt­ur, skorn­ar í bita
  • 400 g plóm­u­tóm­at­ar í dós
  • 2 msk tóm­at­púrra
  • 2 hvít­lauksrif
  • 2 tsk græn­metiskraft­ur­kraft­ur
  • 4 dl vatn
  • 1-2 dl vatn (meira vatn)
  • 1 ½ dl rjómi
  • salt og pip­ar
  • cayenn­ep­ip­ar

Toppa með:

  • Ólífu­olíu
  • ferskri basilíku
  • fersk­um mozzar­ella

Aðferð:

  1. Steikið lauk upp úr ólífu­olíu. Bætið svo gul­rót­um og hvít­lauk sam­an við.
  2. Hellið tómöt­um úr dós ásamt öll­um saf­an­um ofan í, tóm­at­púrru, 4 dl vatni og græn­metiskrafti. Hrærið og látið malla sam­an í 30-40 mín­út­ur á væg­um hita.
  3. Blandið öllu vel sam­an með töfra­sprota. Þá er súp­an orðin vel þykk. Þynnið súp­una með 1-2 dl vatni og rjóma. Kryddið með cayenne, salti og pip­ar.
  4. Berið fram með ólífu­olíu, ferskri basilíku og fersk­um mozzar­ella.

Ólífu­olía með basilíku

  1. Blandið sam­an með töfra­sprota ólífu­olíu, basilíku og smá salti. Hver og einn dreif­ir svo yfir sína súpu­skál þegar þið berið hana fram.
mbl.is/​Hild­ur Rut Ingimars­dótt­ir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert