Vinsælasti lakkrís heims í Harrods

Johan Bülow hefur opnað verslun í Harrods í London.
Johan Bülow hefur opnað verslun í Harrods í London. mbl.is/lakridsbybulow

Einn þekkt­asti lakk­rís­fram­leiðandi heims, Lakrids by Bülow, opn­ar í stærstu og vin­sæl­ustu versl­un Lund­úna­borg­ar – Harrods.

Þeir sem leggja land und­ir fót (von­andi fyrr en síðar) og heim­sækja stór­borg­ina London munu geta nálg­ast bragðbesta lakk­rís síðari tíma í versl­un­inni Harrods – sem flest­um ætti að vera kunn. Sann­ir lakk­rísaðdá­end­ur (þar á meðal við) munu klár­lega hafa þess­ar frétt­ir bak við eyrað næst er við heim­sækj­um Harrods – því maður veit aldrei hvenær lakk­rísþörf­in hell­ist yfir mann fjarri heima­slóðum.

Harrods er ein þekktasta verslun Lundúna og víða um heim.
Harrods er ein þekkt­asta versl­un Lund­úna og víða um heim. mbl.is/​Wikipedia
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert