Ef þú ert eldhúshugleiðingum, þá höfum við tekið saman nokkrar hugmyndir að eldhúseyjum sem gætu heillað – en eyjan er oftar en ekki hetjan í rýminu þegar kemur að notkun eldhússins. Eigum við að vera með stóla við eyjuna, og er í lagi að blanda saman efnum? Hér fyrir neðan eru nokkrar pælingar sem má velta fyrir sér áður en ráðist er í framkvæmdir.
Það er góð hugmynd að hafa stóla við eyjuna í eldhúsinu, til að leyfa gestum og fjölskyldumeðlimum að tylla sér og spjalla á meðan það mallar í pottunum.
mbl.is/ architecturaldigest.com_Pieter Estersohn
Blandaðu saman marmara og brassi – það kemur lygilega vel út.
mbl.is/ architecturaldigest.com_Douglas Friedman
Stígðu út fyrir rammann og skreyttu eldhúseyjuna með speglum – ef þú þorir.
mbl.is/ architecturaldigest.com_Simon Upton
Fylgdu glamúrnum og skreyttu eldhúseyjuna með gulli (kannski ekki alvöru gulli, en eitthvað í áttina).
mbl.is/ architecturaldigest.com_William Waldron
Það er smart að hafa langa eyju ef plássið býður upp á það, fyrir utan hversu magnað vinnusvæði þú færð í eldhúsinu.
mbl.is/ architecturaldigest.com_Richard Powers