Ræktar grænmeti í yfirstærð

Shaun Perryman ræktar grænmeti í yfirstærð í garðinum heima.
Shaun Perryman ræktar grænmeti í yfirstærð í garðinum heima. mbl.is/ SWNS

Það er mik­il­vægt að borða nóg af græn­meti yfir dag­inn, en það velt­ur ef­laust líka á stærðinni á græn­met­inu ef miða má við það risa­græn­meti sem við sjá­um þarna úti.  

Shaun Perrym­an er einn af þeim sem rækta græn­meti í yf­ir­stærð í garðinum heima, en hann hef­ur til dæm­is ræktað tóm­ata sem eru stærri en lófi hans og kál á stærð við lít­inn krakka. Hann byrjaði að rækta græn­meti fyr­ir þrem­ur árum og í fyrstu gaf hann mikið af upp­sker­unni til veg­an vina og fjöl­skyldu þar sem hann borðaði ekki mikið af því sjálf­ur. En risa­grasker verður tekið upp í næsta mánuði, rétt fyr­ir hrekkja­vöku­hátíðina. Shaun þykir garðvinn­an ró­andi og hef­ur hjálpað hon­um mikið and­lega.

Ný­lega tók Shaun upp ein stærsta kál­haus­inn til þessa sem veg­ur yfir níu kíló. Hann ákvað strax að gefa kálið til góðgerðar­stofn­un­ar­inn­ar St. Wilfrid's – þar sem það kæmi að betri not­um en í eld­hús­inu heima hjá hon­um. Starfs­menn stofn­un­ar­inn­ar sögðu í frétt­um að þau hefðu átt í erfiðleik­um með að út­vega ferskt og gott græn­meti á tím­um kór­ónu­veirunn­ar og því hefði þessi rausn­ar­lega gjöf komið að góðum not­um. Shaun færði þeim einnig mikið af kúr­bít og rabarbara – allt í yf­ir­stærð.

Shaun stefn­ir á að taka þátt í sam­keppni um „stærstu“ græn­met­is­rækt­un­ina á næsta ári, og sæk­ist alls ekki eft­ir sigri, held­ur hlakk­ar til að hitta aðra rækt­end­ur og geta skipst á ráðum og sög­um um risa­græn­meti.

mbl.is/ SWNS
mbl.is/ SWNS
mbl.is/ SWNS
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert