Gömlu góðu húsráðin við hálsbólgu

Hálsbólga og kvef hefur herjað landann - og þá er …
Hálsbólga og kvef hefur herjað landann - og þá er gott að eiga góð ráð til að leita í. mbl.is/colourbox

Árs­tím­inn með hor í nös og háls­bólgu er runn­inn upp – og það virðast fáir ætla að kom­ast und­an pest­inni. Hér eru nokk­ur skot­held ráð gegn háls­bólgu sem þú verður að þekkja.

Neg­ulnagl­ar

Neg­ull hef­ur oft­ar en ekki verið notaður sem verkjalyf, sér­stak­lega í kín­verskri lækn­is­fræði og þá við háls­bólgu og tann­pínu. Neg­ull inni­held­ur efnið eu­genol sem hef­ur nátt­úru­leg verkj­astill­andi áhrif. Taktu þrjá neg­ulnagla og sjúgðu þá þar til þeir verða mjúk­ir. Tyggðu þá þá eins og tyggjó þar til nagl­arn­ir hafa leyst upp í munn­in­um og spýttu rest­inni í ruslið.

Notaðu guf­una

Ef háls­inn virðist sár og þurr er mjög gott að nota gufu til að lina verk­ina. Hitaðu lítra af vatni og settu fimm dropa af euca­lyptu­sol­íu út í. Settu hand­klæði yfir haus­inn og hallaðu þér yfir skál­ina á meðan þú and­ar að þér guf­unni í 5-10 mín­út­ur.

Sjúgðu hvít­lauk

Til­hugs­un­in ein og sér um að setja hrá­an hvít­lauk upp í munn­inn er frá­hrind­andi. En ef þú ert að glíma við háls­bólgu þá er hvít­lauk­ur al­gjör stjarna! Hvít­lauk­ur inni­held­ur alli­in sem breyt­ist í allic­in og er mjög gott í að berj­ast við strepta­kokka­bakt­erí­ur. Taktu eitt hvít­lauksrif og sjúgðu það eins og góðan brjóstsyk­ur. Hvít­lauk­ur­inn mun alls ekki bragðast eins og sæl­gæti en láttu þig hafa það. Gott er að sjúga eitt rif á dag þar til háls­bólg­an er á bak og burt.

Heit romm­blanda

Hér er blanda sem marg­ir vilja fara eft­ir og það ekki að ástæðulausu – romm, sítr­óna og hun­ang. Í fyrsta lagi hjálpa sítr­óna og hun­ang háls­in­um að lina verk­ina og í öðru lagi get­ur áfengið fengið þig til að sofa bet­ur. Al­mennt er ekki ráðlagt að neyta áfeng­is þegar maður er veik­ur en þessi blanda hef­ur fengið und­anþágu. Blandið hálf­um desí­lítra af rommi sam­an við te­skeið af hun­angi og te­skeið af nýpressuðum sítr­ónusafa ásamt fjór­um desí­lítr­um af volgu vatni. Drekkið einn drykk fyr­ir svefn­inn.

Salt­vatn

Hver sem ástæðan er fyr­ir háls­bólg­unni þá er háls­inn bólg­inn og aum­ur. Salt­vatn reyn­ist þá gott til að fá bólg­urn­ar til að hjaðna og létta á sárs­auk­an­um. Salt­vatnið fjar­læg­ir einnig um­frams­lím sem auðveld­ar rennslið í nef­inu. Leysið upp hálfa te­skeið af salti í desí­lítra af volgu vatni. Veltið vatn­inu í munn­in­um og látið „gur­gla“ í háls­in­um í eina mín­útu og spýtið því síðan út. End­ur­takið þris­var yfir dag­inn.

Drekktu engi­fer

Marg­ir trúa á gæði engi­fer­rót­ar en hún get­ur losað slím úr hálsi og nefi og minnk­ar bólg­ur í hálsi. Raspaðu 5 cm langa engi­fer­rót og fylltu lít­inn pott með vatni. Bættu engi­fer sam­an við þegar vatnið byrj­ar að sjóða og láttu sjóða í 3-5 mín­út­ur. Gott er að blanda engi­fervatni sam­an við skeið af hun­angi og drekka svo.

Mat­ar­sódi

Mat­ar­sódi er bakt­eríu­drep­andi og get­ur hjálpað til við að drepa ert­andi bakt­erí­ur í háls­in­um. Ef þú bland­ar smá mat­ar­sóda sam­an við salt ertu kom­in/​n með blöndu sem háls­inn mun þakka þér fyr­ir. Hellið heitu vatni í bolla og blandið sam­an við hálfa te­skeið af salti og hálfa te­skeið af mat­ar­sóda. Veltið blönd­unni í munn­in­um og látið „gur­gla“ í háls­in­um og spýtið svo út. End­ur­takið allt að þris­var yfir dag­inn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert