Besta leiðin til að frysta ost

Ljósmynd/Kristinn Magnússon

Það eru ýms­ar leiðir til að frysta ost, því það fer dá­lítið eft­ir því hvernig ost við ætl­um að frysta og þá er betra að hafa réttu hand­tök­in þegar við ráðumst í það verk.

Harðir ost­ar

Ef þú ætl­ar að frysta ost er best að halda sig við harðan ost eins og Chedd­ar. Þegar þú fryst­ir harðan ost er gott að raspa hann og setja í frysti­poka. Eins get­ur þú skorið ost­inn í litla ten­inga og sett í frysti­poka. Ef þú set­ur stórt ost­stykki í frysti eru mikl­ar lík­ur á að hann molni – svo við mæl­um ekki með því.

Mjúk­ir ost­ar

Ef þú vilt frysta mjúk­an ost, eins og t.d. Brie, er best að skera hann niður og vefja hvern bita fyr­ir sig inn og setja þannig í frysti. Það er ekki mælt með að frysta rjóma­ost þar sem hann get­ur orðið kornótt­ur og vatns­kennd­ur þegar hann þiðnar.

Hvernig er best að þíða ost?

Geymdu ost­inn í frysti­pok­an­um eða ílát­inu og láttu þiðna inni í ís­skáp í sól­ar­hring.

Hvað geym­ist ost­ur lengi í frysti?

Sam­kvæmt heimasíðu Food Sa­fety ætti ost­ur að hald­ast góður í sex mánuði í frysti.

mbl.is/​colour­box
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert