Hannaði magnað áhald til að borða pylsur

Pulsuhaldari sem felur þig á meðan þú bítur í pulsuna.
Pulsuhaldari sem felur þig á meðan þú bítur í pulsuna. Mbl.is/ Matty Benedetto

Finnst þér óþægi­legt að borða pyls­ur á al­manna­færi? Eng­ar áhyggj­ur því það er kom­in lausn við því eins og svo mörgu öðru.

Maður að nafni Matty Benedetto er sjálf­menntaður vöru­hönnuður og sér­hæf­ir sig í skrít­inni en jafn­framt dá­sam­legri hönn­un – fyr­ir youtu­ber­ás­ina sína. Allt eru þetta óþarfa upp­finn­ing­ar sem þó eru jafn­framt al­gjör snilld. Nýj­asta verk­efnið hans er Glizzy Gripp­er, vara sem hann varð að hleypa í fram­kvæmd.

Hann fékk inn­blástur­inn út frá ann­ari upp­finn­ingu sem hann póstaði um á Twitter. Þá var ein­hver sem komm­entaði á þessa leið: „This looks more su­spect than a straig­ht guy eating a hot dog in pu­blic.“ Hann tók sig því til og hannaði 3D-mód­el af Glizzy Gripp­er á einu kvöldi og 3D-prentaði hlut­inn yfir nótt­ina – pylsu­hald­ara, þann fyrsta sinn­ar teg­und­ar.

Þessu fylgja þó slæm­ar frétt­ir fyr­ir þá sem hafa hug á að fjár­festa í grip sem þess­um - því var­an er ekki til sölu. En hægt er að fylgj­ast með Matty á youtu­ber­ás­inni HÉR.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert