Nýjungar sem gleðja augað

Glaðlegar nýjungar frá Kodanska.
Glaðlegar nýjungar frá Kodanska. Mbl.is/Kodanska

Nýj­asta vöru­lína Kod­anska held­ur áfram að stækka - og nú með enn fleiri lit­rík­um glervör­um sem gleðja augað.

Fyr­ir þá sem ekki til þekkja er Kod­anska danskt fyr­ir­tæki í eigu Marie Graff, sem fram­leiðir fal­leg­ar gler- og kera­míkvör­ur. Nafnið „Kod­anska“ þýðir í raun Kaup­manna­hafn­ar­gata á tékk­nesku og má finna göt­una í borg­inni Prag. Þess má geta að Marie bjó í ár­araðir með fjöl­skyldu sinni þar í borg og fékk þaðan hug­mynd­ina að fyr­ir­tæk­inu. Kod­anska fram­leiðir tíma­lausa hluti fyr­ir heim­ilið með áherslu á gæði og fag­ur­fræði.

Nýj­ung­arn­ar sem við fáum hér að sjá eru viðbót við FLOW-vöru­lín­una sem hef­ur fengið mikið lof. Hér eru lit­rík­ar karöfl­ur í mjúk­um form­um, list­ræn­ir vas­ar og úr­val af litl­um og stór­um glös­um í tær­um lit­um. Með nýj­ung­un­um mun mat­ar­borðið fljótt fyll­ast af lit­um og per­sónu­leika sem gest­ir munu heill­ast af.

Borðhaldið verður litríkara með þessum fínu vörum.
Borðhaldið verður lit­rík­ara með þess­um fínu vör­um. Mbl.is/​Kod­anska
Mbl.is/​Kod­anska
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert