Fallega endurgert eldhús á Egilsstöðum

Fallega endurgert eldhús á Egilsstöðum þar sem grafíski hönnuðurinn Ingunn …
Fallega endurgert eldhús á Egilsstöðum þar sem grafíski hönnuðurinn Ingunn Þráinsdóttir býr ásamt fjölskyldu sinni. Mbl.is/Ingunn Þráinsdóttir

Fag­ur­ker­ar lands­ins leyn­ast víða og einn af þeim er Ing­unn Þrá­ins­dótt­ir sem ný­verið tók eld­húsið sitt í gegn og við feng­um að sjá fyr­ir-og-eft­ir-mynd­ir af verk­efn­inu.

Ing­unn er graf­ísk­ur hönnuður að mennt og starfar í Héraðsprenti á Eg­ils­stöðum ásamt því að reka hönn­un­ar­fyr­ir­tækið Mosi kósím­osi. Eins er hún í starf­semi með eig­in­manni sín­um sem geng­ur und­ir nafn­inu Onwegogo – en það er ljós­mynda-, dróna- og sam­fé­lags­miðlaþjón­usta. Ing­unn var á leiðinni í masters­nám í Flórens á Ítal­íu núna í haust en þurfti að fresta því vegna Covid-19. 

Það er nóg á könn­unni hjá Ing­unni, en við spurðum hana nán­ar út í eld­húsið á heim­il­inu sem hef­ur fengið frá­bæra yf­ir­haln­ingu. En þau hjón­in fluttu í húsið sem leigj­end­ur árið 2015 og keyptu síðan húsið ári seinna. Hér búa hjón með fjóra ung­linga og hund sem telst sem fimmta barnið í fjöl­skyld­unni.

Í hverju fólust breyt­ing­arn­ar?
Það fyrsta sem við gerðum var að skipta um gól­f­efni, við keypt­um gól­f­efni hjá Þ. Þorgríms­son og lögðum það sjálf  gamla gól­f­efnið var ónýt­ur kork­dúk­ur. Eft­ir það máluðum við inn­rétt­ing­una hvíta og skipt­um um höld­ur. Inn­rétt­ing­in er mjög góð í grunn­inn, og við sáum enga ástæðu til að rífa hana alla í burtu. Við tók­um niður stór­an efri skáp sem eig­in­lega klauf eld­húsið í tvennt í miðju, þegar hann var far­inn opnaðist rýmið svaka­lega og eld­hús­bekk­ur­inn varð að miklu betra vinnu­rými. Til að fá geymslupláss í stað efri skáps­ins sem við rif­um niður keypt­um við háan og mjó­an dökk­an skáp hjá Ikea og sett­um á vegg þar sem ís­skáp­ur­inn hafði staðið. Ísskáp­ur­inn fór inn í aðliggj­andi þvotta­hús og þeir eru tveir þar núna sem er al­gjör snilld. Okk­ur fannst hvít innn­rétt­ing með hvít­um flís­um á milli skápa of eins­leitt og fund­um æðis­leg­ar flís­ar í Vídd sem við sett­um í staðinn. Við sett­um svo ný ljós og máluðum alla veggi, máluðum gólfl­ista, veggofn og svo bit­ana í loft­inu. Nýtt eld­hús­borð og stól­ar voru keypt í Rúm­fa­tala­gern­um.

Hvað tóku breyt­ing­arn­ar lang­an tíma og fenguð þið ein­hverja ut­anaðkom­andi aðstoð?
Við erum búin að vera að gera þetta í skref­um frá ár­inu 2017, að mig minn­ir. Við höf­um gert allt sjálf nema pabbi minn kom að flísa­lögn­inni.

Hverju vilduð þið ná fram með breyt­ing­un­um?
Létta á eld­hús­inu, lýsa það upp og gera betri vinnuaðstöðu án þess samt að rífa allt út og setja allt nýtt. Við vild­um líka hafa það hlý­legt og spenn­andi þar sem eld­húsið er yf­ir­leitt hjarta hvers heim­il­is.

Lit­ur­inn í eld­hús­inu er mjög fal­leg­ur – hvað get­urðu sagt okk­ur um hann?
Hann heit­ir Sjöglött og er úr Húsa­smiðjunni. Ég elska skandi­nav­ísk­ar litap­all­ett­ur og mig langaði að bæta lit inn í dökk­brúna, hvíta og gráa þemað sem var komið inn. Gyllti lit­ur­inn inni í loft­ljós­un­um bæt­ir svo hita við alla formúl­una  gyllt og ljós­blátt er æðis­legt sam­an.

Ég kalla út­litið á þessu eld­húsi „Scandi chic“, þar sem þetta er nokk­urs kon­ar blanda af scandi­navi­an og coun­try chic-stíl.

Er þetta fyrsta eld­húsið sem þið gerið upp?
Já, þetta er okk­ar fyrsta eld­hús en ör­ugg­lega ekki það síðasta. Við höf­um tekið aðra hluta húss­ins í gegn líka en ekki al­veg svona drama­tískt.

Hvaða ráð mynd­irðu gefa þeim sem eru í sömu hug­leiðing­um?
Fylgja eig­in til­finn­ingu í stað þess að kópera, gera rými sem þeim sjálf­um finnst gott að lifa í. Ef fólk treyst­ir sér ekki í stærri fram­kvæmd­ir þá endi­lega fá iðnaðar­menn með sér í lið. Þeir eru líka oft upp­full­ir af sniðugum lausn­um.

Svona leit eldhúsið út fyrir breytingar.
Svona leit eld­húsið út fyr­ir breyt­ing­ar. Mbl.is/​Ing­unn Þrá­ins­dótt­ir
Eftir breytingar! Eins og sjá má hafa húsráðendum tekist vel …
Eft­ir breyt­ing­ar! Eins og sjá má hafa hús­ráðend­um tek­ist vel til í verk­efn­inu. Mbl.is/​Ing­unn Þrá­ins­dótt­ir
Hér er nostrað við hvern krók og kima. Blái liturinn …
Hér er nostrað við hvern krók og kima. Blái lit­ur­inn á veggj­un­um kall­ast Sjöglött og tón­ar vel við aðra liti í eld­hús­inu. Mbl.is/​Ing­unn Þrá­ins­dótt­ir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert