Við eigum öll okkar uppáhaldskonfektmola frá Quality Street – og flest okkar kannast við að sömu molarnir verða alltaf eftir í dósinni, sem enginn borðar. En ekki lengur!
Frá og með deginum í dag geturðu pantað þína uppáhaldsblöndu í dós. Hér ræður þú algjörlega ferðinni, þá hvaða molar eiga að vera í þinni dollu – viltu hafa þá alla þríhyrnda og græna eða ertu meira fyrir fjólubláu eða jafnvel gulu karamellurnar?
Eins er í boði að láta merkja dósirnar með nafninu sínu, þá fer ekkert á milli mála hver á hvaða konfektdós – nú eða ef þú vilt gefa sætindin áfram sem gjöf.
Þeir sem vilja blanda sína eigin veislu í dollu geta skoðað málið nánar HÉR.