Fékk tvöfaldan banana í einum bita

Maður nokkur í Bretlandi lenti í því að fá tvö …
Maður nokkur í Bretlandi lenti í því að fá tvö banana í einu hýði. mbl.is/Tom Symes/SWNS.COM

Maður nokk­ur í Bretlandi lenti í minn­is­stæðu at­viki nú á dög­un­um þegar hann fékk tvö­fald­an ban­ana í ein­um bita.

Þegar Tom Sy­mes keypti ban­anaklasa í mat­vöru­búðinni tók hann ekki eft­ir því að einn ban­an­inn var stærri en vana­lega. Og það var ekki fyrr en heim var komið að hann sá hversu risa­vax­inn einn af þeim var. Hann var smeyk­ur um að ávöxt­ur­inn væri full­ur af kóngu­lóareggj­um eða ónýt­ur. En þegar hann opnaði hýðið kom tvö­fald­ur ban­ani í ljós – hon­um til mik­ill­ar furðu. Hann borðaði ann­an þeirra og gaf mömmu sinni hinn helm­ing­inn. Þeim fannst þetta dá­lítið skondið í byrj­un, en áttuðu sig síðan á því að þetta var bara ban­ani eft­ir allt sam­an.

Tví­bur­ar eru ekki al­geng­ir, og geta einnig komið fyr­ir hjá ávöxt­um sem og dýr­um. Sam­kvæmt sér­fræðing­um geta um 5% ban­ana vaxið í „tvö­falda fing­ur“ – en þeim er oft­ast hent. Og þó að tvö­fald­ir ban­an­ar séu sjald­gæf­ir, þá finn­ast einnig fjór­fald­ir ban­an­ar.

Tom hef­ur ný­lokið við masters­rit­gerðina sína í skól­an­um og leit­ar að vinnu, sem hef­ur ekki gengið vel til þessa. Hann von­ast til að þessi uppá­koma með ban­an­ann muni veita hon­um smá heppni. Hann er í það minnsta bú­inn að rata í frétt­irn­ar víðsveg­ar um heim­inn, sem er ágæt­is byrj­un.

mbl.is/​Tom Sy­mes/​SWNS.COM
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert