Besta leiðin til að steikja nautahakk

Hvernig er best að steikja hakk á pönnu?
Hvernig er best að steikja hakk á pönnu? mbl.is/

Ertu í hópi þeirra sem vilja enga „köggla“ í steiktu nauta­hakki og ham­ast á pönn­unni með sleif­inni til að ná öllu hakk­inu sem mest í sund­ur á meðan það steikist. Ekki leng­ur!

Ráðagóð hús­móðir deildi því á sam­fé­lags­miðlun­um hvernig best sé að steikja nauta­hakk og sleppa við alla kekki og að það steikist jafnt á sama tíma. Ami frá Suður-Wales sagðist nota písk­ara til að brúna hakk á pönnu og ná þannig að steikja það full­komið án kekkja.

Hjá BBC Good Food halda þeir því fram að maður eigi að setja nauta­hakkið í skömmt­um á pönn­una því ef við setj­um all­an pakk­ann í einu séu meiri lík­ur á að það dragi úr hita­stigi pönn­unn­ar og kjötið missi vökv­ann og verði grátt í staðinn fyr­ir brúnt. Eins á að leyfa hakk­inu að ná góðum lit áður en við byrj­um að brjóta það upp og snúa því við.

Besta leiðin til að brjóta upp hakk-köggla er að nota …
Besta leiðin til að brjóta upp hakk-köggla er að nota písk­ar­ann í verkið. mbl.is/​hun­term­ums
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert