Bleikja með fennel- og appelsínusalati

Einstaklega bragðgóð bleikja með appelsínu salati.
Einstaklega bragðgóð bleikja með appelsínu salati. mbl.is/KalliK.is

Mánu­dags­fisk­ur­inn verður ekki betri en þessi upp­skrift hér – grilluð bleikja með fenn­el- og app­el­sínu­sal­ati sem nær nýj­um hæðum.

Upp­skrift­ina feng­um við lánaða úr „kokka­bók“ Kalla K sem er inn­flutn­ings- og heild­sölu­fyr­ir­tæki hér á landi.

Bleikja með fennel- og appelsínusalati

Vista Prenta

Bleikja með fenn­el- og app­el­sínu­sal­ati (fyr­ir 4)

Bleikja

  • 2 flök af bleikju meðal­stór, roðlaus og bein­laus

Gljái fyr­ir bleikju

  • 50 g púður­syk­ur
  • 100 ml vatn
  • 100 ml app­el­sínusafi
  • 30 g engi­fer
  • 1 stk stjörnu­anís
  • 1stk hvít­lauksrif

Sal­at

  • 1 stk fenn­el
  • 1 stk app­el­sína
  • 1 stk rautt chili
  • 3 grein­ar ferskt kórí­and­er
  • 1 msk hrís­grjóna­e­dik
  • 1 tsk hun­ang
  • 2 msk ólífu­olía
  • salt og pip­ar

Aðferð:

  1. Grillið bleikj­una í 1-2 mín á hvorri hlið, fer eft­ir þykkt.
  2. Penslið með sírópi
  3. Kryddið með salti og pip­ar
  4. Setjið á disk ásamt sal­ati.

 

Gljái fyr­ir bleikju

  1. Skrælið og skerið engi­fer í sneiðar.
  2. Kremjið hvít­lauk.
  3. Setjið allt inni­hald í pott og sjóðið í síróp  ró­lega. Þegar sírópið er til­búið skaltu sigta það.

Sal­at

  1. Skerið fenn­el fínt niður.
  2. Skrælið app­el­sínu og skerið í lauf.
  3. Fræhreinsið chiliið og saxið fínt.
  4. Saxið kórí­and­er.
  5. Blandið öllu sam­an, ásamt ed­iki og hun­angi. Kryddið til með salti og pip­ar.
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert