Ofurkleinuhringir í boði Snorra

Graskerskleinuhringir með kanilsykri eru vinsælir hjá börnum og fullorðnum og …
Graskerskleinuhringir með kanilsykri eru vinsælir hjá börnum og fullorðnum og það ekki að ástæðulausu. mbl.is/Snorri Guðmundsson

Hér eru hjúpaðir graskerskleinu­hring­ir að koma úr ofn­in­um í boði Snorra Guðmunds hjá Mat­ur og mynd­ir. Það verður ekki haust­legra meðlætið með kaff­inu en þetta.

„Und­ir­staðan í þess­ari upp­skrift er hreint graskers­mauk frá Libby´s og fæst það í Costco - ann­ars er Hag­kaup eða Fjarðar­kaup væn­leg­ast til vinn­ings. Í stað þess að djúp­steikja þessa kleinu­hringi þá eru þeir bakaðir í ofni í sér­stöku kleinu­hringja­f­ormi sem fæst í Allt í köku, en ég hef líka séð það til í Hag­kaup.”

Ofurkleinuhringir í boði Snorra

Vista Prenta

Graskerskleinu­hring­ir í boði Snorra (22-24 stk.)

  • Græn­met­isol­ía, 100 g
  • Egg, 3 stk
  • Syk­ur, 250 g
  • Hlyn­sýróp, 3 msk
  • Graskers­mauk, 340 g
  • Kanill, 1 tsk
  • Engi­fer­duft, 1/​4 tsk
  • Múskat, 1/​4 tsk
  • Salt, 1,5 tsk
  • Lyfti­duft, 1,5 tsk
  • Hveiti, 230 g
  • For­hitið ofn í 170°C með yfir og und­ir­hita.

Aðferð:

  1. Hrærið sam­an öll hrá­efn­in fyr­ir utan hveiti með handþeyt­ara þar til allt hef­ur sam­lag­ast.
  2. Hrærið hveit­inu sam­an þar til það hef­ur sam­lag­ast blaut­blönd­unni. Var­ist að of­hræra blönd­una með hveit­inu.
  3. Smyrjið kleinu­hringa­formin með olíu svo klein­ur­hing­irn­ir losni auðveld­ar úr formun­um.
  4. Fyllið mót­in sirka 3/​4 leið upp af deigi og bakið í miðjum ofni í 15 mín eða þar til tann­stöng­ull kem­ur hreinn úr miðju kleinu­hringj­anna. Látið kólna í nokkr­ar mín og losið þá úr formun­um.
  5. Veltið upp úr kanil­sykri og berið fram strax eða hyljið með hreinu eld­hús­stykki þar til skömmu áður en bera á fram og veltið þá upp úr kanil­sykri.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert