Beikongræjan sem þú verður að eignast

Græjan sem allir beikon aðdáendur verða að eignast.
Græjan sem allir beikon aðdáendur verða að eignast. Mbl.is/Walmart

Eins ljúf­fengt og nýeldað bei­kon get­ur verið – þá end­ar það oft í óæt­um sóðaskap ef við för­um ekki rétt að. Því það er auðvelt að ofelda bei­kon, nema með þess­ari græju.

Við rák­umst á þetta frá­bæra bei­kon-statíf sem virðist leysa all­an bei­kon­vanda, ef vandi get­ur kall­ast. Græj­an, sem fæst HÉR, kall­ast „Presto PowerCrisp microwave bacon cooker“ og þykir of góð til að vera sönn, því hún hef­ur fengið ótrú­lega dóma hjá not­end­um.  

Þú ein­fald­lega heng­ir bei­konið á statíf eins og þú sért að hengja upp föt á snúru og smell­ir form­inu inn í ör­bylgju­ofn. Þannig færðu stökkt bei­kon á stutt­um tíma og öll fit­an lek­ur niður í bakka sem fylg­ir með. Statífið tek­ur um 12 beikonsneiðar í einu og má fara í uppþvotta­vél, sem sel­ur okk­ur hug­mynd­ina enn frek­ar.

Mbl.is/​Walmart
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert