Við elskum lakkrís og vonum að þið gerið það líka – því hér er uppskrift að lakkrísmúffum frá ókrýnda kónginum sjálfum Johan Bülow. Bakstur sem enginn lakkrísaðdáandi vill missa af.
Lakkrísmúffur frá Johan Bülow (16 stk.)
- 225 g sykur
- 225 g ósaltað smjör
- 225 g hveiti
- 4 egg
- 2,5 tsk. lyftiduft
- 1 tsk. kardimommudropar
- 1 tsk. vanillusykur
- 9 tsk. Salty Liqourice Syrup frá Johan Bülow
Krem
- 200 g hreinn Philadelphia-rjómaostur
- 2 msk flórsykur
- 2 tsk. Fine Liqourice Powder
Skraut
- 16 stk. Nr. 2 Salty Liqourice
Aðferð:
- Hitið ofninn á 175°C á blæstri.
- Blandið hveiti og lyftidufti saman og þeytið saman við restina af hráefnunum þar til deigið verður slétt í sér (engir kögglar).
- Skiptið deiginu upp í 16 múffuform og setjið háfa teskeið af lakkríssírópi á toppinn á hverri köku. Takið tannstöngul og hrærið sírópinu aðeins inn í deigið.
- Bakið í 20 mínútur og látið kólna á rist áður en kremið er sett á.
Krem:
- Blandið rjómaostinum saman við flórsykurinn og lakkrísduftið. Smyrjið þykku lagi á hverja múffu og skreytið með lakkrísbita og lakkrísdufti.