Marengstoppar sem bakast yfir nóttina

Marengstoppar sem bakast í ofni yfir nótt.
Marengstoppar sem bakast í ofni yfir nótt. mbl.is/Laura Abernethy

Það jafn­ast ekk­ert á við að vakna einn kald­an skamm­deg­is­morg­un við nýbakaðar smá­kök­ur í ofn­in­um. Því þess­ar kök­ur bak­ast á meðan þú sef­ur! Hér eru mar­eng­stopp­ar með hnetu- og súkkulaðifyll­ingu.

Marengstoppar sem bakast yfir nóttina

Vista Prenta

Mar­eng­stopp­ar sem bak­ast yfir nótt­ina

  • 2 eggja­hvít­ur
  • 120 g syk­ur
  • 1 tsk vanillu­drop­ar
  • 150 g hnet­ur, súkkulaði eða það sem hug­ur­inn girn­ist. Í þess­ari upp­skrift eru pist­asíu­hnet­ur og hvítt súkkulaði.

Aðferð:

  1. Hitið ofn­inn á 180°C.
  2. Pískið eggja­hvít­urn­ar stíf­ar og setjið syk­ur­inn smátt og smátt út í á meðan þið þeytið.
  3. Saxið hnet­ur og súkkulaði í skál og blandið vanillu­drop­un­um sam­an við. Setjið blönd­una var­lega sam­an við til að loftið fari ekki úr mar­engs­blönd­unni.
  4. Setjið kúfaðar mat­skeiðar af deig­inu á bök­un­ar­papp­ír á bök­un­ar­plötu.
  5. Setjið bök­un­ar­plöt­una inn í heit­an ofn­inn og slökkvið á ofn­in­um. Látið deigið bak­ast inni í heit­um ofn­in­um yfir nótt á meðan hann kóln­ar.
  6. Kök­urn­ar geym­ast í allt að þrjá daga.
Hnetur, súkkulaði eða það sem hugurinn girnist. Í þessari uppskrift …
Hnet­ur, súkkulaði eða það sem hug­ur­inn girn­ist. Í þess­ari upp­skrift er not­ast við pist­as­íu hnet­ur og hvítt súkkulaði. mbl.is/​Laura Aber­net­hy
mbl.is/​Laura Aber­net­hy
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert