Desert drauma þinna

Desert sem fær þig til að gleyma stund og stað.
Desert sem fær þig til að gleyma stund og stað. mbl.is/

Það hljóm­ar fátt betra en bökuð hassel­back-epli með vanilluís á köld­um haust­dög­um. Hér er upp­skrift sem fær þig til að gleyma öllu um stund og stað – og njóta.

Desert drauma þinna

Vista Prenta

Bökuð hassel­back-epli

  • 2 stór epli
  • ólífu­olía
  • 4 msk. syk­ur
  • 2,5 msk. bráðið smjör
  • 1 tsk. kanill
  • 2 msk. haframjöl
  • 1 tsk. hveiti
  • salt á hnifsoddi
  • vanilluís

Aðferð:

  1. Hitið ofn­inn á 200°C.
  2. Skrælið epl­in og skerið til helm­inga og fjar­lægið kjarn­ann úr þeim.
  3. Skerið fín­ar og djúp­ar lín­ur í epl­in en passið að skera ekki al­veg í gegn.
  4. Setjið epl­in í smurt eld­fast mót.
  5. Blandið sam­an 1 msk. sykri, ½ tsk. kanil og 1 msk. bráðnu smjöri – og penslið epl­in.
  6. Setjið álp­app­ír yfir eld­fasta mótið og bakið í ofni við 200°C í 20 mín­út­ur. Takið álp­app­ír­inn af og bakið epl­in áfram í 10 mín­út­ur eða þar til gyllt á lit.
  7. Blandið af­gang­in­um af hrá­efn­un­um sam­an og setjið ofan á epl­in. Bakið síðan áfram í 200°C í 10 mín­út­ur. Stillið ofn­inn á grill, í tvær mín­út­ur til viðbót­ar.
  8. Berið fram nýbakað með vanilluís.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert