Partíréttirnir sem Siggi Gunnars mælir með!

Siggi Gunnars mun stýra bingói á mbl.is í kvöld.
Siggi Gunnars mun stýra bingói á mbl.is í kvöld.

Við feng­um upp­á­halds bingó­stjóri lands­manna til að taka sam­an lista af frá­bær­um partýrétt­um sem upp­lagt er að bjóða upp á með fjöl­skyldu­bingó kvölds­ins. 

Sigga brást ekki boga­list­in frem­ur en fyrri dag­inn og við mæl­um sann­ar­lega með því með því að þið takið hann til fyr­ir­mynd­ar fyr­ir kvöldið. Bingóið hef­ur notið mik­illa vin­sælda enda stút­fullt af glæslieg­um vinn­ing­um svo ekki sé minnst á þau Sigga og Evu Ruzu sem eru auðvitað stór­brot­in í hlut­verk­um sín­um sem bingó­stjór­ar.

„Ég mæli með því að fólk geri al­vöru fjöl­skyldu- eða vina­stund úr bingó­inu og skelli í eitt­hvað ein­falt og gott til þess að maula með. Vina­hóp­ur­inn minn ger­ir mjög mikið af því að skella í alls kon­ar rétti og gera eitt­hvað sam­an, þannig að maður er þaul­reynd­ur í að skoða par­tíu­pp­skrift­ir. Hér eru þrjár mjög ein­fald­ar upp­skrift­ir sem ég elska og fann á mat­ar­vefn­um góða."

„Gott partí kall­ar á snakk, það er bara svo­leiðis, og því ekki að bæta því bara út í aðal­rétt­inn! Það er allt gott við þenn­an rétt sem mun slá í gegn hjá öll­um í bingópar­tí­inu. Per­sónu­lega myndi ég skella Camp­bells-svepp­asúp­unni út í þenn­an rétt til þess að fara með hann yfir strikið, enda gera Camp­bell-súp­urn­ar all­an djúsímat góðan."

„Það er ein­fallt og gott að skella í svona kök­ur, nokkuð sem all­ir í fjöl­skyld­unni geta tekið þátt í og öll­um þykir gott líka. Því ekki að hita upp fyr­ir bingó með að skella í rice krispís-kök­ur kvöldið áður? Gæða sér svo á þessu á milli talna."

„Ég er mik­ill brauðréttamaður og ætla að taka þenn­an í næsta par­tíi. Lít­ur út fyr­ir að vera tryllt­ur! Líka svo dá­sam­lega ein­fald­ur. Spurn­ing hvort bingó­spil­ar­ar lands­ins vilji gera til­raun fyr­ir mig!"

mbl.is

Stönd­um sam­an

Við hjá Árvakri vilj­um vekja at­hygli á því sem vel er gert á þess­um erfiðu tím­um. Ef þú ert með góða sögu af fyr­ir­tækj­um og ein­stak­ling­um sem eru að gera gott, sendu okk­ur ábend­ingu á net­fangið stond­um­sam­an@mbl.is.

Stöndum saman

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert