Hér bjóðum við upp á fullorðinsútgáfu af hinum klassísku hafrakúlum sem við annars þekkjum svo vel. Nema hér skiptum við kókos út fyrir kaffi.
Hafrakúlur með kaffibragði
- 120 g haframjöl
- 60 g kókosmjöl
- 40 g sykur
- 3 msk. kakó
- 1 tsk. vanillusykur
- 1 msk. kaffiduft (instantkaffi)
- 1 msk. romm-essens
- 90 g mjúkt smjör
- kaffiduft til skrauts
Aðferð:
- Setjið haframjölið í blandara og hakkið. Setjið í skál og bætið öllum þurrefnum saman við – blandið vel saman.
- Setjið romm-essens saman við ásamt smjörinu. Notið fingurna til að blanda smjörinu saman við.
- Setjið massann í kæli í 30 mínútur.
- Mótið í litlar kúlur og veltið upp úr kaffidufti áður en borið er fram.
Uppskrift: Isabellas