Þórunn Högna breytir eldhúsi fyrir klink

Þórunn Högnadóttir, fagurkeri með meiru, hefur gjörbreytt litlu sumarhúsi fyrir …
Þórunn Högnadóttir, fagurkeri með meiru, hefur gjörbreytt litlu sumarhúsi fyrir lítinn pening mbl.is/Mynd aðsend

Hún er ein­stak­lega út­sjón­ar­söm og smart þegar kem­ur að því að skreyta og gera fal­legt á heim­il­inu – og þá er sum­ar­húsið held­ur eng­in und­an­tekn­ing. Við erum að sjálf­sögðu að vitna í fag­ur­ker­ann Þór­unni Högna.

Þór­unn og maður­inn henn­ar Brand­ur keyptu gaml­an bú­stað í lok sum­ars á þessu ári. Húsið er byggt árið 1974 og er 60 fer­metr­ar að stærð. Þau áttu lóð í Gríms­nesi og létu flytja bú­staðinn þangað, en húsið stóð áður í Munaðarnesi. „Við lét­um flytja húsið núna í sept­em­ber síðastliðnum, þá var bæði vatn og raf­magn komið að lóðarmörk­um. Maður­inn minn er bú­inn að vera að vinna á fullu í að koma hús­inu í stand fyr­ir vet­ur­inn en all­ar svona fam­kvæmd­ir taka sinn tíma – sem get­ur tekið heil­mikið á fyr­ir eins óþol­in­móða mann­eskju og mig,“ seg­ir Þór­unn og hlær – en þau gistu fyrstu nótt­ina í hús­inu tveim­ur mánuðum eft­ir flutn­inga.

Þór­unn var með ákveðnar hug­mynd­ir hvað hana langaði til að gera með húsið að inn­an, enda eru verk­efni sem þetta þau allra skemmti­leg­ustu fyr­ir fag­ur­kera eins og Þór­unni. „Við máluðum húsið svart að utan en það var áður ljós­grátt. Eins lökkuðum við alla glugga­pósta, hurðar og bita í loft­um svarta. Meira að segja eld­hús­inn­rétt­ing­in og uppþvotta­vél­in eru núna svart­ar að lit en sú breyt­ing var alls ekki kostnaðar­söm. Við tók­um einnig kast­ara og loft­ljós í her­bergj­um og spreyjuðum svört með lakk­spreyi frá Slipp­fé­lag­inu, og það kem­ur mjög vel út,“ seg­ir Þór­unn. Á stefnu­skránni er að skipta um borðplötu og vask í eld­hús­inu og seinna meir vilja þau dekkja gólfið í hús­inu. Og þar sem lagn­ir skemmd­ust í flutn­ing­um mun baðher­bergið fá yf­ir­haln­ingu.

Þór­unn og fjöl­skylda hafa verið mikið í sum­ar­hús­inu und­an­farið, enda alltaf nóg að græja og gera. Hún seg­ir skemmti­legt að hafa verk­efni sem bíða eft­ir að vera kláruð en þessa stund­ina er maður­inn henn­ar að smíða pall, svo heiti pott­ur­inn geti verið not­hæf­ur um jól­in. „Við fjöl­skyld­an ætl­um að halda jól­in í sveit­inni, þetta verða því öðru­vísi jól – nota­leg og kósí,“ seg­ir Þór­unn sem bæt­ir því við að þau muni reyna að halda í hefðir eins og hægt er, þrátt fyr­ir ástandið í dag. En hvað skyldi vera í mat­inn hjá þeim heiðurs­hjón­um á aðfanga­dags­kvöld? „Við verðum með hum­ar í for­rétt og ham­borg­ar­hrygg ásamt meðlæti í aðal­rétt. Eft­ir­rétt­ur­inn verður súkkulaðimar­engskaka með rjóma, fersk­um berj­um og snickerssósu,“ seg­ir Þór­unn að lok­um og ósk­ar gleðilegra jóla.

Eldhúsið hefur sannarlega tekið breytingum, með eingöngu spreyi og smá …
Eld­húsið hef­ur sann­ar­lega tekið breyt­ing­um, með ein­göngu spreyi og smá máln­ingu. mbl.is/​Mynd aðsend
Það er jólalegt og kósí stemning í sumarhúsinu hjá Þórunni …
Það er jóla­legt og kósí stemn­ing í sum­ar­hús­inu hjá Þór­unni Högna og fjöl­skyldu. mbl.is/​Mynd aðsend
Svona leit eldhúsið út áður en Þórunn tók það í …
Svona leit eld­húsið út áður en Þór­unn tók það í sín­ar hend­ur. mbl.is/​Mynd aðsend
Séð inn í stofurýmið fyrir breytingar.
Séð inn í stofu­rýmið fyr­ir breyt­ing­ar. mbl.is/​Mynd aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert