Svona gerir þú milljón króna vasa úr krukkum

Tómum glerkrukkum má breyta í tískuvöru fyrir lítinn pening.
Tómum glerkrukkum má breyta í tískuvöru fyrir lítinn pening. Mbl.is/ Facebook

Það má á marg­an hátt út­færa ein­föld­ustu hluti að fal­leg­um skreyt­ing­um fyr­ir heim­ilið og þær kosta lítið sem ekk­ert - en líta út fyr­ir að kosta millj­ón, eða svona næst­um því.

Áströlsk kona deildi því á sam­fé­lags­miðlum hvernig hún tók gaml­ar krukk­ur og ílát og breytti þeim fyr­ir lít­inn pen­ing í fal­lega vasa. Eft­ir að hafa fjar­lægt alla miða og lím af krukk­un­um, þá málaði hún þær með kalk­máln­ingu. Þannig fékk hún þessa fal­legu möttu áferð sem flest all­ar dýru hönn­un­ar­vör­urn­ar skarta í versl­un­um í dag. Eft­ir máln­ing­ar­um­ferð núm­er tvö, inn­siglaði hún krukk­urn­ar með glæru vaxi og skreytti síðan með garni.

Hún seg­ir að verkið krefj­ist lít­ils und­ir­bún­ings. Eina sem þú þarft að gera er að þrífa ílát­in vel og láta þorna áður en þú byrj­ar að mála. Þú gæt­ir þurft tvær til þrjár um­ferðir af máln­ingu til að fá fulla þekju.

Mbl.is/ Face­book
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert