Enga sýkla þegar blásið er á kertin takk

Afmæliskökur hafa þurft að taka á móti breytingum eftir heimsfaraldurinn.
Afmæliskökur hafa þurft að taka á móti breytingum eftir heimsfaraldurinn. Mbl.is/Pinterest_cookingclassy

Það hef­ur svo margt breyst und­an­farið ár. Gamla góða af­mæliskak­an hef­ur þurft að taka á sig breyt­ing­ar – því eng­inn vill taka þá áhættu að fá sýkla á kök­una þegar blásið er á kert­in.

Það er fátt meira spenn­andi fyr­ir þann sem á af­mæli en að blása á kert­in á kök­unni. En það er minna spenn­andi fyr­ir alla hina sem munu þiggja sneið, þar sem búið er að „frussa“ nokkr­um munn­vatns­sýkl­um yfir sykruðu bomb­una. Og til þess að koma í veg fyr­ir þetta hef­ur kona að nafni Krystal Rochelle fundið lausn­ina! Hún ein­fald­lega setti plast­hjálm yfir kök­una þar sem hún bræðir smá kerta­vax og læt­ur leka á hjálm­inn til að festa kert­in. Þannig helst kak­an var­in fyr­ir öllu öðru rétt á meðan af­mæl­is­barnið blæs og fær ósk sína upp­fyllta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert