Morgunverðarpítsa að hætti Snorra

Þessi morgunverðarpítsa slær öll met!
Þessi morgunverðarpítsa slær öll met! Mbl.is/Snorri Guðmundsson

„Þessi pítsa tékk­ar í öll réttu box­in og er akkúrat það sem maður vill á kósí laug­ar­dags­morgni,“ seg­ir Snorri Guðmunds hjá Mat og mynd­um. Og við tök­um heils­hug­ar und­ir með hon­um.

„Þessi upp­skrift að pítsu­deigi er svaka­lega ein­föld og skil­ar manni æðis­leg­um botni, en hún krefst smá þol­in­mæði þar sem deigið þarf að taka sig í tvo daga áður en pítsurn­ar eru bakaðar og því gott að plana aðeins fram í tím­ann. Þú munt samt ekki sjá eft­ir því! Það er auðvitað líka í fínu lagi að nota til­búið pítsu­deig ef tím­inn er af skorn­um skammti,“ seg­ir Snorri, sem mæl­ir jafn­framt með því að nota pítsu­stein.

Morgunverðarpítsa að hætti Snorra

Vista Prenta

Morg­un­verðarpítsa að hætti Snorra

  • Brauðhveiti, 420 g + smá meira til að vinna með
  • syk­ur, 10 g
  • borðsalt, 7 g
  • þurr­ger, 7 g
  • ólífu­olía, 6 msk
  • vatn, 280 g
  • smjör, 20 g
  • hvít­lauk­ur, 1 rif
  • mozzar­ella rif­inn, 150 g
  • par­mes­an eða pecor­ino, smá bút­ur
  • silk­iskor­in skinka, 40 g / Ali
  • egg, 2-3 stk
  • lauk­ur, 1/​4 lít­ill
  • grill­krydd, eft­ir smekk / Santa Maria
  • breiðblaða stein­selja, 4 g

Aðferð:

  1. Hitið vatnið í 30-40 sek í ör­bylgju­ofni þar til það er svipað heitt og nota­legt bað.
  2. Setjið hveiti, syk­ur, salt og þurr­ger í mat­vinnslu­vél og látið vél­ina ganga í stutt­um hrin­um í 4-5 skipti þar til allt hef­ur sam­lag­ast vel. Hellið vatni og 2 msk af ólífu­olíu yfir hveiti­blönd­una og látið vél­ina ganga sam­fleytt í 15 sek. þar til deig­kúla hef­ur mynd­ast. Látið vél­ina svo ganga í 15 sek. til viðbót­ar.
  3. Stráið smá hveiti á borð og takið deigið úr mat­vinnslu­vél­inni. Hnoðið deigið í stutta stund, skiptið því svo í tvennt og myndið úr því 2 kúl­ur. Spreyið eða smyrjið 2 skál­ar með olíu og færið deigið í skál­arn­ar. Hyljið með matarfilmu og setjið í kæli í 2 sól­ar­hringa.
  4. Takið 1 kúlu úr kæli 2 klst. áður en baka á pítsuna. Hina kúl­una má nota inn­an 2 daga.
  5. Leggið grind í botn­inn á ofni og pítsu­stein þar ofan á. Stillið ofn­inn á 250°C með yfir- og und­ir­hita og látið stein­inn hitna upp með ofn­in­um.
  6. Bræðið smjör með 1 pressuðu hvít­lauksrifi. Skerið lauk í strimla.
  7. Hafið bök­un­ar­papp­ír til­bú­inn til þess að leggja deigið á.
  8. Notið hend­urn­ar til þess að fletja botn­inn út í um 30 cm hring á borðinu. Best er að vinna út frá miðju deigs­ins í átt að kant­in­um og reyna að hlífa um 2 cm af kant­in­um við sem mestu hnjaski, en þannig er gasinu sem hef­ur mynd­ast yfir síðustu 2 daga ýtt út í kant­inn sem verður til þess að hann lyft­ist mun bet­ur. Færið botn­inn yfir á bök­un­ar­papp­ír
  9. Smyrjið botn­inn með hvít­laukss­mjöri, rífið par­mes­an/​pecor­ino yfir og dreifið svo mozzar­ella­osti yfir. Rífið skink­una og raðið yfir ost­inn og stráið lauk yfir. Kryddið rausn­ar­lega með grill­kryddi.
  10. Það er hægt að setja egg­in á pítsuna á tvo vegu:
  11. Ef egg­in er sett í heilu lagi með rauðunni á pítsuna og hún svo bökuð verður miðjan svipuð því og í lin­soðnu eggi, sem er ljúf­fengt.
  12. Ann­ars má aðskilja rauðuna og hvít­una og setja ein­ung­is hvít­una á pítsuna, þegar eld­un­ar­tími pítsunn­ar er hálfnaður er rauðan svo sett ofan á hálfeldaða hvít­una og eld­un­ar­tím­inn kláraður. Þannig helst rauðan meira fljót­andi.
  13. Notið pítsu­spaða til þess að færa pítsuna á bök­un­ar­papp­írn­um á heit­an pítsu­stein­inn. Bakið í 6-7 mín eða þar til píts­an er orðin fal­lega gyllt og ost­ur­inn kraum­andi. Þegar tím­inn er hálfnaður er gott að fjar­lægja bök­un­ar­papp­ír­inn (og bæta eggj­ar­auðunum við ef sú aðferð varð fyr­ir val­inu).
  14. Saxið stein­selju og dreifið yfir pítsuna áður en mat­ur­inn er bor­inn fram.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert