Iceland kynnir Joey Tribbiani-pítsu

Karakterinn Joey Tribbiani úr sjónvarpsþáttunum Friends, var sólginn í pítsur. …
Karakterinn Joey Tribbiani úr sjónvarpsþáttunum Friends, var sólginn í pítsur. Og nú fást pítsur honum til heiðurs! Mbl.is/ NBC_Iceland

Stór­markaðsris­inn Ice­land hef­ur sett á markað nýja pítsu til heiðurs karakt­ern­um Joey Tribb­iani úr sjón­varpsþáttaröðinni Friends, sem marg­ir lands­menn ættu að kann­ast við.

All­ir aðdá­end­ur Friends-þátt­anna vita hversu mikið Joey elsk­ar mat – og þá sér­stak­lega pítsur. Því hef­ur versl­un­ar­keðjan Ice­land í Bretlandi kynnt nýja pítsu í versl­un­um sín­um sem Joey myndi alls ekki láta fram hjá sér fara. Bak­an hef­ur hvorki meira né minna en tvo þunna pítsu­botna og þekk­ist sem „Joey special“.

Áleggið er ekki af verri end­an­um, því þú get­ur valið á milli pepp­erónípítsu með tómöt­um og chil­isósu ásamt mozzar­ella og míníbei­koni eða BBQ-kjúk­linga- og bei­kon­böku sem er hul­in chedd­ar og rauðum osti. Í frétta­til­kynn­ingu Ice­land seg­ir: „Aðdá­end­ur vin­sæl­ustu sjón­varpsþátt­anna, Friends, geta nú nært sinn innri Tribb­iani með ít­alskri mat­ar­gerð – pítsu.“

mbl.is/​Ice­land
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert