Hélt að takkarnir væru að detta af

Kona nokkur hélt að takkarnir væru að detta af örbylgjuofninum …
Kona nokkur hélt að takkarnir væru að detta af örbylgjuofninum hennar, þegar raunin var allt önnur. mbl.is/

Kona nokk­ur deildi vand­ræðal­egu augna­bliki á sam­fé­lags­miðlum þegar hún hélt að takk­arn­ir væru að detta af ör­bylgju­ofn­in­um – en svo reynd­ist ekki vera.

Kon­an er frá Ástr­al­íu og keypti ofn­inn fyr­ir fimm árum. Ný­verið kastaði hún því fram á Face­book að hún héldi að takk­arn­ir væru að slitna eða hrein­lega detta af ör­bylgju­ofn­in­um. Það var þá sem hún áttaði sig á því að hlífðarplastið væri ennþá á – hún hafði aldrei tekið það af þegar hún keypti ofn­inn. Já­kvæða hliðin á þessu öllu sam­an er þá sú að hún er með glæ­nýtt út­lit á ofn­in­um í dag.

At­huga­semd­ir við færsl­una létu ekki á sér standa, því marg­ir viður­kenndu að hafa gert sömu mis­tök­in. Maður sem vinn­ur í versl­un sagðist þekkja þetta „vanda­mál“ því fólk kæmi ít­rekað með vör­ur sem það segði gallaðar og vildi fá þeim skilað. Kona viður­kenndi að hafa gleymt ör­yggis­plast­inu á geislaspil­ar­an­um í bíln­um sín­um mánuðum sam­an – greini­lega ekki mikið notaður.

Konan átti hreinlega eftir að taka plastið af takkaborðinu.
Kon­an átti hrein­lega eft­ir að taka plastið af takka­borðinu. Mbl.is/​Face­book
Mbl.is/​Face­book
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert