Sjúklegur fiskréttur með papriku og camembert – ketó

Ljósmynd/Helena Gunnarsdóttir

„Hér er á ferðinni stór­kost­lega góður fisk­rétt­ur sem minn­ir mig á minn upp­á­halds­brauðrétt, gamla góða papriku- og ca­m­em­ber­trétt­inn sem klár­ast alltaf fyrst í öll­um veisl­um,“ seg­ir Helena Gunn­ars­dótt­ir sem á heiður­inn af upp­skrift­inni.

Þessi spari­legi fisk­rétt­ur á vel heima í veisl­um en líka bara á þriðju­dags­kvöldi heima. Það vill líka svo skemmti­lega til að rétt­ur­inn hent­ar þeim sem velja ke­tóm­ataræði ein­stak­lega vel.

Sjúklegur fiskréttur með papriku og camembert – ketó

Vista Prenta

Gratín­eraður fisk­ur með papriku og ca­m­em­bert  ketó

4 skammt­ar

  • 800 g ýsa skor­in í bita (7-800 g)
  • 3 paprik­ur, skorn­ar smátt (2-3)
  • 1⁄2 blaðlauk­ur, smátt skor­inn
  • 250 ml rjómi frá Gott í mat­inn
  • 1⁄2 askja smurost­ur með papriku
  • 1 Dala-ca­m­em­bert, skor­inn í bita
  • 1 tsk. dijons­inn­ep
  • 1 tsk. paprikukrydd
  • 1⁄2 græn­metisten­ing­ur
  • rif­inn gratínost­ur frá Gott í mat­inn, góð hand­fylli

Aðferð:

  1. Hitið ofn í 180 gráður.
  2. Skerið ýs­una í bita og saltið aðeins.
  3. Leggið í smurt eld­fast mót.
  4. Skerið græn­metið og setjið til hliðar.
  5. Bræðið sam­an í potti rjóma, smurost og helm­ing­inn af ca­m­em­bertost­in­um, ásamt dijons­inn­epi, paprikukryddi og græn­metisten­ingi.
  6. Smakkið til með svört­um pip­ar.
  7. Hellið sós­unni yfir fisk­inn.
  8. Dreifið græn­met­inu því næst yfir og toppið með rifn­um osti og rest­inni af ca­m­em­bertost­in­um, skorn­um í litla ten­inga.
  9. Bakið í um það bil 20 mín­út­ur eða þar til fisk­ur­inn er eldaður í gegn og ost­ur­inn gull­in­brúnn.
Ljós­mynd/​Helena Gunn­ars­dótt­ir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert