Ótrúleg aðferð til að skilja að eggjarauðu og -hvítu

Hér er um ótrúlega aðferð í eggjatrixi að ræða.
Hér er um ótrúlega aðferð í eggjatrixi að ræða. Mbl.is/@rightguysaldireviews

Það finn­ast ótal leiðir til að skilja að eggj­araðu og -hvítu en marg­ar hverj­ar eru þær sóðal­eg­ar – og oft­ar en ekki renn­ur rauðan sam­an við hvít­una eða skurn moln­ar út í skál­ina. Hér er þó undra­verð lausn við þess­um vanda.

Maður nokk­ur deildi því ný­verið hvernig hann skil­ur rauðuna frá hvít­unni með brauðsneið einni sam­an. Hann brýt­ur eggið og set­ur í skál, því næst nudd­ar hann þumal- og vísi­fingri við brauðsneið og tek­ur hrein­lega eggj­ar­auðuna upp úr skál­inni með fingr­un­um ein­um sam­an. Og það í heilu lagi!

Svo virðist sem brauðið dragi í sig nátt­úru­leg­an raka af fingr­un­um, sem ger­ir það að verk­um að þú nærð góðu taki á eggj­ar­auðunni. En til þess að ná upp mörg­um eggj­ar­auðum er þörf á að nudda fingr­un­um við brauðið inn á milli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert