900 dagar á ketó

Hanna Þóra hefur verið 900 daga á ketó mataræðinu og …
Hanna Þóra hefur verið 900 daga á ketó mataræðinu og hefur aldrei liðið betur. Ljósmynd/Aðsend

Það eru fáir sem hafa til­einkað sér ketó-lífs­stíl­inn jafn vel og Hanna Þóra sem hef­ur verið á mataræðinu í tvö og hálft ár og seg­ir að það sé ná­kvæm­lega eng­in skerðing á lífs­gæðum að segja skilið við kol­vetn­in. Þvert á móti hafi hún sjald­an borðað jafn góm­sæt­an mat.

„Ég er að hefja minn níu­hundraðasta dag á ketó núna um helg­ina sem er skemmti­leg staðreynd. Tvö og hálft ár sem hef­ur verið ótrú­lega lær­dóms­rík­ur tími en um­fram allt afar skemmti­leg­ur, seg­ir Hanna Þóra sem seg­ir að mun­ur­inn sem hún finni sé mik­ill.

„Ég finn gíf­ur­leg­an mun á ork­unni sem ég hef í dag­legu amstri. Áður var ég sí­fellt þreytt, sótti í skyndi­orku og var far­in að þyngj­ast mjög mikið. Ég er mun létt­ari á mér bæði lík­am­lega, and­lega og melt­ing­in er mun betri eft­ir að ég breytti mataræðinu. Þau kol­vetni sem ég borða eru þau kol­vetni sem mér líður vel með að borða. Ég finn fyr­ir ákveðnum létti að vera búin að ákveða að borða ekki kol­vetni sem henta mér illa eins og hveiti og syk­ur, það er því eng­inn dans á lín­unni leng­ur sem ein­fald­ar mér lífið. Ég er mik­ill sæl­keri en upp­lifi eng­an skort því ég finn ávallt ketóvæn­an staðgengil fyr­ir allt sem mig lang­ar að borða. Ég myndi segja að síðustu 900 dag­ar hafi verið þeir allra bestu í lífi mínu hvað varðar góm­sæt­an mat.

Helstu mis­tök­in sem fólk ger­ir

Það er göm­ul vísa og ný að fólk byrj­ar oft með miklu offorsi og gefst fljótt upp. Á það bæði við um lík­ams­rækt og mataræði en Hanna seg­ir það afar mik­il­vægt að vera þol­in­móður. „Al­geng­ustu mis­tök­in sem fólk ger­ir er að gefa sjálfu sér ekki tíma til að venj­ast nýju mataræði. Þol­in­mæði þraut­ir vinn­ur all­ar og það besta sem þú get­ur gefið sjálf­um þér er tími til að hugsa um heils­una og leyfa ferl­inu að vinna með þér, seg­ir hún en Hanna gaf í fyrra út bók­ina KETÓ sem hef­ur fengið frá­bær­ar viðtök­ur enda góður leiðar­vís­ir að mataræðinu auk þess að vera sneisa­full af góm­sæt­um upp­skrift­um.

„Ketó er þess eðlis að það þarf að kynna sér vel all­ar teg­und­ir af mat­væl­um og átta sig á því hvernig nær­ing­ar­gild­in eru. Þeim mun fleiri vör­ur sem þú skoðar inni­halds­lýs­ing­ar og nær­ing­ar­gildi á – þeim mun fróðari verður þú um val þitt á þinni nær­ingu,“ seg­ir Hanna og deil­ir hér upp­skrift með les­end­um þar sem hún not­ar spaghettí sem marg­ur hefði haldið að væri á bann­lista. Hér er hins veg­ar um að ræða nán­ast kol­vetnalaust spaghettí sem Hanna Þóra seg­ir að sé mjög mik­il­vægt; að finna staðgengla fyr­ir þær kol­vetnaríku vör­ur sem voru í upp­á­haldi og hún hélt að hún þyrfti að kveðja. Sér í lagi seg­ist Hanna Þóra sakna hrís­grjóna en sá söknuður heyri nú sög­unni til eft­ir að hún upp­götvaði hrís­grjón frá breska fyr­ir­tæk­inu Bar­ena­ked sem unn­in eru úr konjac-rót.

- - -

Fylgstu með Mat­ar­vefn­um á In­sta­gram og Face­book. Enda­laus æv­in­týri, hug­mynd­ir, skemmti­leg­ir leik­ir og allt það heit­asta heita ...

Svo megið þið endi­lega tagga okk­ur á In­sta­gram þegar þið eruð að elda eitt­hvað spenn­andi @mat­ur.a.mbl

Bók Hönnu Þóru er uppseld en ný sending er væntanleg …
Bók Hönnu Þóru er uppseld en ný send­ing er vænt­an­leg eft­ir helgi. Ljós­mynd/​Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert