Var gagnrýnd fyrir að smyrja nesti fyrir manninn sinn

Kona nokkur var gagnrýnd á TikTok fyrir að smyrja nesti …
Kona nokkur var gagnrýnd á TikTok fyrir að smyrja nesti fyrir manninn sinn. mbl.is/

Kona nokk­ur lenti í harðri gagn­rýni á sam­fé­lags­miðlum eft­ir að hafa birt mynd­ir af því er hún smurði nesti handa mann­in­um sín­um. Sem ann­ars ætti að telj­ast sak­laust at­hæfi eða hvað?

Hún deildi mynd­bandi á TikT­ok af há­deg­is­mat sem hún und­ir­bjó fyr­ir mann­inn sinn til að taka með í vinn­una. Og um­mæl­in létu ekki á sér standa. Há­deg­is­mat­ur­inn sam­an­stóð af jóg­úrt, þurrkuðum apríkós­um, banana­flög­um, salami, vín­berj­um, osti, kexi, popp­korni og súkkulaðistykki.

Ein­hver sagði að nestið liti út eins og fyr­ir átta ára krakka en öðrum fannst full­lítið í nest­is­box­inu fyr­ir full­orðna mann­eskju. Marg­ir komu þó kon­unni til varn­ar og sögðu það mjög hug­ul­samt að smyrja nesti fyr­ir mann­inn sinn fyrst hún var á annað borð að smyrja nesti fyr­ir sig sjálfa. Hvað finnst þér, smyrð þú nesti fyr­ir maka þinn á morgn­ana?

Hádegismaturinn samanstóð af jógúrti, þurrkuðum apríkósum, bananaflögum, salami, vínberum, osti, …
Há­deg­is­mat­ur­inn sam­an­stóð af jóg­úr­ti, þurrkuðum apríkós­um, banana­flög­um, salami, vín­ber­um, osti, kexi, popp­korni og súkkulaðistykki. Mbl.is/@​ki­ara­elaine__/​Tikt­ok
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert