Vantar þig nýjar hugmyndir um hvernig best sé að geyma kryddin, múslíið eða pastað? Við skelltum okkur í búðarölt í netverslanir bæjarins og fundum nokkrar smart krukkur í ýmsum stærðum sem ættu að létta á skúffunum í eldhúsinu.
Falleg loftþétt krukka frá Bitz – ýmsar stærðir. Fæst í Líf og list.
Mbl.is/Bitz
Krukkur undir krydd, pasta, múslí eða hvað sem þér dettur í hug frá Rosendahl. Fæst í Epal.
Mbl.is/Grand Cru
Hvít steinkrukka með loki frá flotta framleiðandanum Eightmood – fullkomin undir krydd eða salt. Fæst í Módern.
Mbl.is/Eightmood
Stílhrein glerkrukka með marmaraloki frá Nordstjerne. Fæst í Lífi og list.
Mbl.is/Nordstjerne
Múmín-safnarar gleðjast yfir þessari krukku sem rúmar 0,7 lítra. Fæst í Kokku.
Mbl.is/Iittala
Kryddkrukka með loftþéttu loki, rúmar 50 ml. Fæst í Søstrene Grene.
Mbl.is/Søstrene Grene
Vipp er með allt sem til þarf í eldhúsið og þar eru krukkur í ýmsum stærðum engin undantekning. Fæst í Epal.
Mbl.is/Vipp
Þeir sem vilja færa sig út í apótekarastílinn, þá fást krukkur með loki í ýmsum stærðum hjá Jurtaapótekinu.
Mbl.is/Jurtaapótekið