Tiktok-pastað sem allir krakkar vilja prófa

Ljósmynd/Gott í matinn

Ef það er eitt­hvað sem for­eldr­um hef­ur lærst þá er það áhrifa­mátt­ur tikt­ok og hér erum við með upp­skrift sem hef­ur hrein­lega verið kölluð tikt­ok-pastað.

Upp­skrift­in er frek­ar ein­föld en hér leika ost­ur og tóm­at­ar aðal­hlut­verk­in. Hérna er okk­ar út­færsla þar sem Ostakubb­ur frá Gott í mat­inn fær að njóta sín í allri sinni dýrð.

Tiktok-pastað sem allir krakkar vilja prófa

Vista Prenta

Tikt­ok-pasta

Fyr­ir fjóra

  • 1 stk. Ostakubb­ur frá Gott í mat­inn
  • 500 g kirsu­berjatóm­at­ar
  • 3 stk. hvít­lauksrif
  • 1⁄2 tsk. chili­f­lög­ur (magn eft­ir smekk)
  • 1 tsk. þurrkað óreg­anó
  • smá sjáv­ar­salt
  • 1⁄2 dl ólífu­olía
  • 500 g þurrkað pasta að eig­in vali
  • væn hand­fylli fersk basilíka

Aðferð:

  1. Hitið ofn í 180 gráður með blæstri.
  2. Setjið ostakubb­inn í eld­fast mót og hellið heil­um kirsu­berjatómöt­um í kring­um ost­inn.
  3. Sneiðið hvít­lauksrif­in í þunn­ar sneiðar og dreifið yfir ásamt chili­f­lög­um, óreg­anó og smá salti.
  4. Hellið ólífu­olíu yfir allt og blandið aðeins sam­an. Hafið ost­inn í miðjunni
  5. Bakið í 25 mín­út­ur eða þar til ost­ur­inn er bráðnaður og tóm­at­arn­ir mjúk­ir.
  6. Sjóðið pastað sam­kvæmt leiðbein­ing­um á pakka á meðan ost­ur­inn og tóm­at­arn­ir bak­ast.
  7. Sigtið pastað og hellið því heitu yfir ost­inn og tóm­at­ana og blandið vel sam­an.
  8. Toppið með rif­inni ferskri basilíku, smakkið til með salti eft­ir smekk og berið fram.

Höf­und­ur: Helena Gunn­ars­dótt­ir

Ljós­mynd/​Gott í mat­inn
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert