Splunkunýtt matarstell frá Royal Copenhagen

Nýtt matarstell frá Royal Copenhagen er kallast Blueline.
Nýtt matarstell frá Royal Copenhagen er kallast Blueline. Mbl.is/Royal Copenhagen

Í annað sinn á einu og hálfu ári kynn­ir Royal Copen­hagen splunku­nýtt mat­ar­stell sem kall­ast „Blu­el­ine“.

Við könn­umst við ým­is­legt í nýja mat­ar­stell­inu, því und­ir­staðan er oft­ast sú sama – hvítt postu­lín með riffluðum könt­um og bláu munstri. Mjög fín­leg hand­máluð lína skreyt­ir brún­irn­ar ásamt blá­um stimpli sem sést efst á disk­um og á botn­in­um í boll­um og skál­um – allt í anda vörumerk­is­ins. Nýju vör­urn­ar eru stíl­hrein­ar með ein­földu „penn­astriki“ eða „blu­el­ine“, og má auðveld­lega blanda stell­inu sam­an við aðrar týp­ur frá Royal Copen­hagen sem prýdd­ar eru stór­um blóma­munstr­um.

Stílhreint og einfalt í anda vörumerkisins.
Stíl­hreint og ein­falt í anda vörumerk­is­ins. Mbl.is/​Royal Copen­hagen
Mbl.is/​Royal Copen­hagen
Mbl.is/​Royal Copen­hagen
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert