Uppáhaldssaltfiskréttur Hönnu Þóru

Ljósmynd/Hanna Þóra

Þessi upp­skrift kem­ur frá Hönnu Þóru og er í ketó út­gáfu en hún seg­ir upp­skrift­ina al­gjör­lega frá­bæra og frem­ur auðvelda. 

„Þenn­an salt­fisk­rétt gerði tengda­mamma reglu­lega fyr­ir nokkr­um árum en hann var í miklu upp­á­haldi hjá öll­um í fjöl­skyld­unni. Upp­runa­lega upp­skrift­in var með hveitira­spi en ketóvæna út­gáf­an kem­ur dá­sam­lega út,“ seg­ir Hanna Þóra.

Upp­á­halds­salt­fisk­rétt­ur Hönnu Þóru

Vista Prenta

Upp­á­halds­salt­fisk­rétt­ur­inn minn í ketóvænni út­gáfu með hvít­lauk, rauðum chili og ólíf­um

Fyr­ir tvo

  • 800 g salt­fisk­ur
  • 1 dl kó­kos­hveiti
  • svart­ur pip­ar
  • ólífu­olía til steik­ing­ar

Topp­ur

  • 2 stk. hvít­lauks­geir­ar
  • 1/​2 krukka stein­laus­ar svart­ar ólíf­ur
  • 2 stk. rauður chil­ipip­ar
  • stein­selja (krulluð)

Aðferð:

  1. Fjar­lægið roðið af salt­fisk­in­um og stráið kó­kos­hveiti báðum meg­in.
  2. Kryddið með svört­um pip­ar og hitið pönnu.
  3. Steikið upp úr ólífu­olíu á miðlungs­hita báðum meg­in en passið að snúa fisk­in­um bara einu sinni til að passa kó­kos­hveitira­spinn.
  4. Þegar fisk­ur­inn er orðinn fal­lega gyllt­ur leggið hann þá í ofn­fast mót.
  5. Skerið hvít­lauks­geira í þunn­ar sneiðar.
  6. Skerið rauðan chili niður í sneiðar (ég tek fræ­in úr en all­ur hit­inn leyn­ist í þeim).
  7. Skerið ólíf­urn­ar niður í 2-3 búta hverja. Passið að eng­ir stein­ar leyn­ist inni í þeim.
  8. Steikið hvít­lauk, chili og ólíf­ur upp úr olíu og leggið yfir fisk­inn í ofn­fasta mót­inu.
  9. Bakið fisk­inn í um 20 mín­út­ur og setjið stein­selju yfir rétt áður en fisk­ur­inn er bor­inn á borð.
Ljós­mynd/​Hanna Þóra
Ljós­mynd/​Hanna Þóra
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert