Svona hleypir þú lífi í eldhússtörfin

Stundum kallar líflausa eldhúsið okkar á smá lit í umhverfið.
Stundum kallar líflausa eldhúsið okkar á smá lit í umhverfið. Mbl.is/Now Design

Ef þér er farið að leiðast eld­hús­störf­in, þá er spurn­ing hvort að þú þurf­ir ekki að hressa upp á mat­ar­gerðina með líf­legri eld­hús­vör­um sem þess­um.

Now Design var stofnað í San Francisco árið 1967 – en fyr­ir­tækið sér­hæf­ir sig meðal ann­ars í að fram­leiða hágæða tex­tíl í eld­húsið. Vör­urn­ar frá Now Design eru lit­rík­ar og líf­leg­ar, og enn frem­ur eft­ir­tekta­verðar – því munstr­in sem prýða vör­urn­ar geta jafn­vel verið dá­lítið kó­mísk­ar.

Skál­ar, nest­is­box, mynd­ræn viska­stykki, kart­öflu­sekk­ir og jafn­vel svunt­ur sem minna á svana-kjól­inn sem ást­sæla söng­kon­an okk­ar, Björk Guðmunds­dótt­ir klædd­ist hér um árið - og fell­ur seint úr gildi. Allt þetta og miklu meira til frá Now Design - vör­ur  sem  færa svo sann­ar­lega líf inn í dag­legu eld­hús­störf­in. Því það er löngu vitað að lífið er mun skemmti­legra í lit. Vör­urn­ar frá Now Design fást í Kokku.

Geggjaðir innkaupapokar!
Geggjaðir inn­kaupa­pok­ar! Mbl.is/​Now Design
Now Design sérhæfir sig í að framleiða vörur með grafískum …
Now Design sér­hæf­ir sig í að fram­leiða vör­ur með graf­ísk­um og oft­ar en ekki kó­mísk­um munstr­um. Mbl.is/​Now Design
Skemmtilegar svuntur sem þessar eru fáanlegar á bæði börn og …
Skemmti­leg­ar svunt­ur sem þess­ar eru fá­an­leg­ar á bæði börn og full­orðna. Mbl.is/​Now Design
Fallegar skálar á matarborðið.
Fal­leg­ar skál­ar á mat­ar­borðið. Mbl.is/​Now Design
Ótal viskastykki finnast frá fyrirtækinu og hér er eitt með …
Ótal viska­stykki finn­ast frá fyr­ir­tæk­inu og hér er eitt með mæliein­ing­um sem oft er gott að hafa við hönd­ina. Mbl.is/​Now Design
Kartöflusekkir, eins pokar undir lauka og engifer.
Kart­öflu­sekk­ir, eins pok­ar und­ir lauka og engi­fer. Mbl.is/​Now Design
Ílát og baukar með skrautlegum teikningum í öllum stærðum og …
Ílát og bauk­ar með skraut­leg­um teikn­ing­um í öll­um stærðum og gerðum finn­ast frá Now Design. Mbl.is/​Now Design
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert