Langbesta leiðin til að þrífa sturtuglerið

Besta leiðin til að þrífa sturtuglerið er víst með uppþvottalegi.
Besta leiðin til að þrífa sturtuglerið er víst með uppþvottalegi. mbl.is/

Áður en þú ferð að maka sápu út um allt baðher­bergið er betra að vera með réttu aðferðina þegar haf­ist er handa. Því þetta er víst lang­besta leiðin til að þrífa sturtuglerið.

Til er ástr­alsk­ur þrifa­hóp­ur á Face­book þar sem kona nokk­ur deildi hús­ráði er varðar sturtuglerið – en sturtugler eiga það til að verða dá­lítið skít­ug ef við erum ekki alltaf að pússa þau og þrífa sápu­leif­arn­ar af. Kon­an lýs­ir því þannig að hún ein­fald­lega fyll­ir brúsa með heitu vatni og hell­ir því næst nokkr­um drop­um af gul­um FAIRY-uppþvotta­legi út í. Hún tek­ur einnig fram að maður eigi ekki að hrista blönd­una sam­an. Því næst úðaði hún blönd­unni á glerið og lét standa 20 mín­út­ur áður en hún pússaði glerið með mjúk­um svampi (ekki harða hlut­an­um). Hún sagðist bók­staf­lega horfa á sápu­leif­arn­ar hverfa af gler­inu. Því næst skol­ar hún og þurrk­ar með mjúk­um klút.

Þessi um­ræddi uppþvotta­lög­ur hef­ur verið á markaði í yfir 50 ár en lenti fyrst í versl­un­um í Ástr­al­íu árið 2011. Marg­ur land­inn ætti að kann­ast við vör­una, þó að við höf­um ekki sann­reynt hana inni á baðher­bergi fyrr en núna.

Myndin sem konan deildi af sturtuglerinu sínu eftir þrifin, á …
Mynd­in sem kon­an deildi af sturtugler­inu sínu eft­ir þrif­in, á Face­book. Mbl.is/ Face­book
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert