Hvað er í matinn stækkar við sig

mbl.is/Hvaderimatinn.is

Ein nyt­sam­leg­asta heimasíða lands­ins, „Hvað er í mat­inn“, hef­ur tekið heil­mikl­um breyt­ing­um síðustu miss­eri. Og nýj­ung­arn­ar eru spenn­andi kost­ir fyr­ir neyt­end­ur.

Heimasíðan hef­ur verið starf­rækt frá ár­inu 2006, og var til­gang­ur henn­ar að svara þess­ari erfiðu spurn­ingu sem oft­ast kem­ur seinnipart dags­ins: „Hvað er í mat­inn?“ Inni á vefn­um get­ur þú ákveðið for­send­ur mat­ar fyr­ir vik­una, t.d. fisk á mánu­dög­um, kjúk­ling á þriðju­dög­um og svo fram­veg­is. Kerfið kem­ur þá með viku- eða mánaðarseðil af upp­skrift­um miðað við þess­ar for­send­ur. Þá get­urðu ákveðið hversu marg­ir eru í mat og breyt­ist inni­halds­lýs­ing í sam­ræmi við það. Einnig er hægt að prenta út eða sjá inn­kaupal­ista sem þarf í þess­ar til­teknu upp­skrift­ir og klára inn­kaup­in – því heimasíðan er tengd versl­un sem býður upp á heimsend­ingu. Eins er hægt að sækja í fljót­lega og auðvelda rétti á síðunni, þá velja upp­skrift­ir sem taka ákveðið lang­an tíma. Og þar má einnig finna ketó­flokk sem hef­ur notið mik­illa vin­sælda með breytt­um lífs­stíl lands­manna.

Hvað er í mat­inn hef­ur tekið mikl­um stakka­skipt­um, því hún sam­ein­ar tvö áhuga­mál margra – mat og drykk. Nú get­ur þú keypt inn­flutt vín frá Síle, Spáni og Ítal­íu og brátt verður rabarbara­freyðivín á boðstól­um. Hægt er að skrá sig á póstlista á heimasíðunni til að missa ekki af nýj­ustu frétt­um, en þess má geta að heimasíðan er orðin not­enda­væn í farsím­um sem er mik­ill kost­ur fyr­ir upp­tekna ein­stak­linga. Hægt er að skoða skoða upp­skrift­ir og ann­an fróðleik á heimasíðunni HÉR.

Heimasíðan er aðgengileg og auðveld í notkun.
Heimasíðan er aðgengi­leg og auðveld í notk­un. mbl.is/​Hvaderimat­inn.is
Yfir 1.300 uppskriftir eru í kerfinu á heimasíðunni. Því ættu …
Yfir 1.300 upp­skrift­ir eru í kerf­inu á heimasíðunni. Því ættu all­ir að finna eitt­hvað við sitt hæfi. mbl.is/​Hvaderimat­inn.is
Felix er stofnandi heimasíðunnar „Hvað er í matinn“.
Fel­ix er stofn­andi heimasíðunn­ar „Hvað er í mat­inn“. mbl.is/​Hvaderimat­inn.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert