Hugmyndin kviknaði í fæðingarorlofinu

Íris og Reynir standa vaktina á staðnum sínum, Mr. Joy …
Íris og Reynir standa vaktina á staðnum sínum, Mr. Joy í Kópavogi. mbl.is/Árni Sæberg

Þeir sem kjósa holl­ara mataræði og huga að heils­unni hafa ef­laust prófað ljúf­fenga mat­inn hjá Mr. Joy. Þar eru chili-döðlusúpa sem þykir sú besta á land­inu, því fólk sæk­ir í hana aft­ur og aft­ur. 

Það eru Reyn­ir Hafþór og Íris Mjöll sem standa á bak við veg­an/​græn­metisveit­ingastaðinn Mr. Joy í Kópa­vogi. Þau ráku sig á hversu erfitt var að nálg­ast holl­an, veg­an og glút­en­laus­an mat þegar þau voru í fæðing­ar­or­lofi hér um árið  og eng­in orka til að elda sjálf. Þegar þeim bauðst að opna nýj­an veit­ingastað stukku þau á tæki­færið og opnuðu staðinn í apr­íl­mánuði 2019.

„Við bjóðum upp á glút­en­laus­an veg­an­mat og leggj­um okk­ur fram við að hafa sem mest líf­rænt hverju sinni. Mat­ur­inn hjá okk­ur ætti að henta flest­um, hvort sem þeir eru veg­an, pescat­ari­an eða kjötæt­ur  enda eru marg­ir sem eru á alla­veg­ana mataræði sem koma til okk­ar og grípa hjá okk­ur rétt dags­ins eða súp­ur,“ seg­ir Reyn­ir Hafþór í sam­tali.

Reyn­ir Hafþór seg­ir þau alltaf vera að leika sér með ný hrá­efni, aðferðir og í leit að nýj­um upp­skrift­um sem henta sem flest­um, en chili-döðlusúp­an hef­ur verið sú vin­sæl­asta hjá þeim frá upp­hafi, og fara sög­ur af. „Súp­urn­ar okk­ar hafa verið mjög vin­sæl­ar frá opn­un en vin­sæl­asti rétt­ur­inn okk­ar þessa dag­ana er ef­laust sá nýj­asti. Það er græn­met­is­bak­an okk­ar með glút­en­lausa botn­in­um, hvít­laukskart­öflumús­inni og sal­ati með bal­sam­gljáa. Fyllta eggald­inið hjá okk­ur er líka mjög vin­sælt, en þá blönd­um við af pers­nesk­um og mar­okkósk­um bragðteg­und­um sam­an ásamt okk­ar heima­gerða ai­oli. Og svo topp­um við með fersku chili, kórí­and­er, myntu og granatepla­fræj­um,“ seg­ir Reyn­ir okk­ur og und­ir­rituð sér þetta mjög mynd­rænt fyr­ir sér.

Okk­ur lá for­vitni að vita nán­ar um nafnið – Mr. Joy  sem er ekk­ert nema bein vís­un í eitt­hvað sem gleður og er gott. „Upp­haf­lega þegar nafnið Mr. Joy kom til vor­um við að hugsa til litlu barna­bók­anna um herra­menn­ina og var hugs­un­in sú að gera „ham­ingjumat“; mat sem manni líður vel eft­ir að hafa borðað og er líka bragðgóður. En á meðan við vor­um að finna full­komna lógóið fyr­ir staðinn kom pabbi minn með þá hug­mynd að lógói sem við erum með núna, og við vor­um öll sam­mála um að þetta hefði bara komið sam­an eins og það hafi alltaf átt að vera svona,“ seg­ir Reyn­ir Hafþór að lok­um.

Þeir sem eiga eft­ir að bragða á vin­sæl­ustu súp­um lands­ins geta fundið veit­ingastaðinn Mr. Joy í Dal­brekku 30, Kópa­vogi. Hægt er að skoða staðinn nán­ar HÉR.

Bestu súpur landsins eru mögulega að finna á veitingastað í …
Bestu súp­ur lands­ins eru mögu­lega að finna á veit­ingastað í Kópa­vogi. En fólk sæk­ist í þær aft­ur og aft­ur. mbl.is/Á​rni Sæ­berg
Chili- og döðlusúpan hafa verið þær vinsælustu á staðnum frá …
Chili- og döðlusúp­an hafa verið þær vin­sæl­ustu á staðnum frá upp­hafi, og fara sög­ur af. mbl.is/Á​rni Sæ­berg
Alllt hráefnið er fyrsta flokks.
Alllt hrá­efnið er fyrsta flokks. mbl.is/Á​rni Sæ­berg
Það er allt vegan og glúteinlaust hjá Mr. Joy.
Það er allt veg­an og glút­ein­laust hjá Mr. Joy. mbl.is/Á​rni Sæ­berg
Nýkreistir djúsar eru vinsælir hjá Mr. Joy.
Nýkreist­ir djús­ar eru vin­sæl­ir hjá Mr. Joy. mbl.is/​Mr. Joy
Veitingastaðinn má finna í Laufbrekku 30 í Kópavogi.
Veit­ingastaðinn má finna í Lauf­brekku 30 í Kópa­vogi. mbl.is/​Mr. Joy
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert