Fólk er að þvo fötin sín með uppþvottavélatöflum

Ýmis húsráð finnast varðandi þrif og þvott.
Ýmis húsráð finnast varðandi þrif og þvott. mbl.is/Getty Images

Áhrifa­vald­ar í þrif­um eru komn­ir skref­inu lengra en við hin – og not­ar nýja tækni þegar kem­ur að því að þrífa haugskít­ug­ar flík­ur.

Við vit­um hversu vel uppþvotta­véla­töfl­ur virka á skít­ugt leirtau og nú virðist vera sem þær virki einnig á fatnað. Kona nokk­ur deildi því á sam­fé­lags­miðlum hvernig hún set­ur uppþvotta­véla­töfl­ur í troml­una í þvotta­vél­inni með skít­ug­um föt­um – en hún gerði pruf­uraun á vinnu­föt­um manns­ins síns sem voru ötuð koli og fitu. Hún þvoði ný­verið þvotta­vél­ina með uppþvotta­véla­töflu sem skilaði vél­inni tand­ur­hreinni og ákvað að prófa að gefa föt­un­um snún­ing með sömu aðferð.

Útkom­an var slá­andi, þó að ekki hafi allt náðst úr flík­un­um var allt annað að sjá þær. Föt­in hafa aldrei litið jafn vel út, þrátt fyr­ir að hafa verið margoft þveg­in í iðnaðarþvotta­vél­um á vinnustað manns­ins áður.

Fólk hef­ur einnig verið að not­ast við edik til að þrífa mjög skít­ug föt, teppa­sjampó og jafn­vel Coca-Cola til að ná blett­um úr föt­um, en uppþvotta­véla­töfl­ur eru sann­ar­lega þess virði að prófa. Við mæl­um samt ekki með að nota slík­ar töfl­ur á fínni föt þar sem töfl­urn­ar inni­halda fjölda efna, t.d. bleiki­efni sem geta reynst of hörð efni fyr­ir marg­an fatnaðinn.

- - -

Fylgstu með Mat­ar­vefn­um á In­sta­gram. Enda­laus æv­in­týri, hug­mynd­ir, skemmti­leg­ir leik­ir og allt það heit­asta heita ...

Svo megið þið endi­lega tagga okk­ur á In­sta­gram þegar þið eruð að elda eitt­hvað spenn­andi @mat­ur.a.mbl

Kona nokkur ákvað að þvo föt eiginmannsins með uppþvottavélatöflum.
Kona nokk­ur ákvað að þvo föt eig­in­manns­ins með uppþvotta­véla­töfl­um. Mbl.is/​Face­book
Eins og sjá má varð vatnið haugskítugt.
Eins og sjá má varð vatnið haugskít­ugt. Mbl.is/​Face­book
Og fötin orðin gott sem tandurhrein!
Og föt­in orðin gott sem tand­ur­hrein! Mbl.is/​Face­book
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert