Maturinn sem hjálpar til við svefninn

Leikkonan Audrey Hepburn svaf vært í myndinni Breakfast at Tiffany's …
Leikkonan Audrey Hepburn svaf vært í myndinni Breakfast at Tiffany's - örugglega með mataræðið á hreinu. Mbl.is/Skjáskot úr myndinni Breakfast at Tiffany's

And­vöku­næt­ur! Það kann­ast all­ir við að hafa legið hálfu og heilu næt­urn­ar að slást við kodd­ann um að festa svefn. Mögu­lega spil­ar mataræðið eitt­hvað þarna inn í – og hér eru mat­vör­ur sem gott er að neyta ef þú átt erfitt með svefn. Að sögn svefn­ráðgjaf­ans Rus­sells Rosen­bergs hjá Nati­onal Sleep Foundati­on hef­ur mataræðið mikið að segja um hvernig nótt­in þró­ast.

Góður mat­ur fyr­ir svefn­inn

  • Kirsu­ber inni­halda nátt­úru­legt melatón­ín sem hjálp­ar lík­am­an­um að halda dag­legri hringrás. Ef þú þjá­ist af langvar­andi svefn­leysi skaltu drekka kirsu­berja­safa fyr­ir svefn­inn.
  • Mjólk Marg­ir hafa prófað að hita mjólk með skvettu af hun­angi út í eða kanil og drekka fyr­ir hátta­tím­ann – og það ekki að ástæðulausu. Mjólk inni­held­ur amínó­sýruna tryptóf­an sem serótón­ín mynd­ast úr. Hátt inni­hald serótón­íns í heil­an­um hef­ur af­stress­andi, ró­andi og verkj­astill­andi áhrif – sem get­ur auðveldað þér að festa svefn.
  • Þess má geta að tryptóf­an má einnig finna í tún­fiski, skinku, kalk­úna­kjöti, eggj­um og soja­baun­um, en það er ákjós­an­legra að drekka mjólk fyr­ir svefn­inn til að setja ekki melt­ing­ar­kerfið í yf­ir­vinnu á hátta­tíma.
  • Ban­an­ar Þess­ir gulu bognu ávext­ir inni­halda bæði magnesí­um og kalí­um sem hafa vöðvaslak­andi áhrif, svo mögu­lega væri gott að fá sér mjólk­urglas með ban­ana ef þú átt í vand­ræðum með að sofna. Góðu kol­vetn­in í ban­an­an­um hafa einnig mett­andi áhrif sem hjálpa til við svefn­inn og eru al­mennt mjög góð fyr­ir heils­una.

Slæm­ur mat­ur fyr­ir svefn­inn

  • Áfengi Þó að þú sofn­ir hraðar eft­ir vínglas, þá eyðilegg­ur áfengi svefn­inn þinn. Þú sef­ur bæði létt­ari svefni og verri. Sam­kvæmt Health.com fengu kon­ur sem drukku glas af bour­bon eða vod­ka með koff­ín­lausu gosi fyr­ir svefn­inn 19 mín­út­um styttri svefn en ella og gæði svefns­ins minnkuðu.
  • Kaffi – Eins og flest­ir vita get­ur koff­ínið í kaffi valdið svefn­vanda­mál­um og haft veru­leg áhrif á svefn­gæðin. Þar spil­ar að sjálf­sögðu inn í hversu viðkvæm­ur þú ert fyr­ir koff­íni og hversu van­ur þú ert efn­inu, en betra er að sleppa allri koff­índrykkju fyr­ir svefn­inn.
  • Súkkulaði – inni­held­ur einnig koff­ín, sér­stak­lega dökkt súkkulaði. Þannig að kaffi og súkkulaði er ekki besta bland­an á kvöld­in. Súkkulaði inni­held­ur einnig teóbrómín sem örv­ar hjartað og get­ur verið or­sök svefn­leys­is.
  • Sterk­ur mat­ur – að borða sterk­an mat seint á kvöld­in þykir ekki ákjós­an­legt. Rann­sókn­ir hafa sýnt fram á að fólk sem borðar tabasco eða sterkt sinn­ep á kvöld­in á erfiðara með að sofna og ná djúpa svefn­in­um.
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert