Nýjasta æðið er prosecco í ísformi

Prosecco í ísformi - er nýjasta æðið fyrir sumarið.
Prosecco í ísformi - er nýjasta æðið fyrir sumarið. Mbl.is/metro.co.uk

Við horf­um fram á bjart­ari tíma! Loft­hit­inn hækk­ar og fljót­lega hit­um við upp í grill­inu og för­um í su­mar­kjól. Og gott fólk – við mun­um njóta okk­ar með prosecco sem nú verður í ís­formi.

Þessi skemmti­legu mót kall­ast „sophistipops“ og gera þér kleift að búa til fjóra kampa­víns- eða prosecco-íspinna. Eina sem þú þarft að gera er að fylla mót­in með upp­á­halds­drykkn­um þínum og setja síðan meðfylgj­andi glas­fæt­ur þar ofan á og inn í frysti. Síðan tek­urðu í fót­inn og los­ar úr form­inu og færð þenn­an frá­bæra full­orðins-íspinna! Svo er upp­lagt að setja æti­leg blóm eða ávexti með og frysta, það ger­ir drykk­inn sum­ar­legri. Fyr­ir áhuga­sama þá kost­ar mótið um 1.500 krón­ur og fæst HÉR.

Það má að sjálfsögðu fylla mótið með hvaða drykk sem …
Það má að sjálf­sögðu fylla mótið með hvaða drykk sem er - áfeng­um sem og óá­feng­um. Mbl.is/​The Gift and Gadget Store
Mbl.is/​The Gift and Gadget Store
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert