Pönnukökur finnast í ótal útfærslum, en þessi hér er sú vinsælasta þessa dagana ef marka má helstu samfélagsmiðla. Svokallaðar japanskar pönnukökur sem eru þykkari en flestar aðrar en ótrúlega léttar.
Japanskar pönnukökur eru það heitasta
Japanskar pönnukökur (2-3)
- 80 g hveiti
- 5 g lyftiduft
- 42 g strásykur
- 200 ml mjólk
- 21 g sólblómaolía
- 2 meðalstór egg
- 7 g vanilla paste
- 50 ml hlynsýróp
- 40 g ósaltað smjör
Aðferð:
- Sigtið saman hveiti, lyftiduft og sykur í stóra skál.
- Blandið saman í aðra skál mjólk, eggjarauðum, matskeið af olíunni og hálfri teskeið af vanillu-paste. Þeytið svo blönduna saman við þurrefnin.
- Pískið því næst eggjahvíturnar stífar og bætið saman við blönduna, alltaf þriðjung í einu.
- Smyrjið pönnu og einnig lítil hringlaga form sem þola að fara á pönnuna.
- Hellið 2/3 af deiginu í litla formið og setjið lok á. Látið bakast á pönnu í tíu mínútur. Þegar loftbólur hafa myndast á toppinn á deiginu skaltu fjarlægja pönnukökuna úr forminu.
- Blandið sírópinu saman við restina af vanillu-paste og hellið yfir pönnukökurnar og dreifið jafnvel hnetumulningi yfir ef vill.
- - -
Fylgstu með Matarvefnum á Instagram. Endalaus ævintýri, hugmyndir, skemmtilegir leikir og allt það heitasta heita ...
Svo megið þið endilega tagga okkur á Instagram þegar þið eruð að elda eitthvað spennandi @matur.a.mbl
Japanskar pönnukökur virðast vera nýjasta æðið í dag.
Mbl.is/Dr. Oetker