Heitasta nýjungin á pallinn er sjónvarp

Góðir landsmenn! Nú er hægt að fá sjónvarp á pallinn …
Góðir landsmenn! Nú er hægt að fá sjónvarp á pallinn sem þolir veður og vinda. Mbl.is/Samsung

Tækja­fram­leiðand­inn Sam­sung var að kynna til leiks nýtt sjón­varp sem þú get­ur notað úti á palli – því það þolir alls kyns veður og vinda.

Hér er um nýtt æði að ræða og þeir allra fremstu í fag­inu munu ekki bíða lengi eft­ir að festa kaup á tæki sem þessu. Nýja tækið frá Sam­sung kall­ast „The Terrace“ og kem­ur með hátal­ara sem einnig er hugsaður til notk­un­ar ut­an­dyra. Sjón­varpið er vatnsþétt, þolir raka – og get­ur staðið í allt að -30 gráðum og upp í +50 gráður.

Það er nokkuð ljóst að pallapar­tí­in eiga eft­ir að breyt­ast til muna við þessa viðbót og finn­ast sjón­vörp­in í nokkr­um stærðum. Fyr­ir áhuga­sama má lesa meira um tækn­ina HÉR.

- - -

Fylgstu með Mat­ar­vefn­um á In­sta­gram. Enda­laus æv­in­týri, hug­mynd­ir, skemmti­leg­ir leik­ir og allt það heit­asta heita ...

Svo megið þið endi­lega tagga okk­ur á In­sta­gram þegar þið eruð að elda eitt­hvað spenn­andi @mat­ur.a.mbl

Hátalari fylgir með sjónvörpunum.
Hátal­ari fylg­ir með sjón­vörp­un­um. Mbl.is/​Sam­sung
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert