Svona bjargar þú blettóttum pottum á einfaldan hátt

Það er auðveldara en þú heldur að þrífa blettótta potta …
Það er auðveldara en þú heldur að þrífa blettótta potta og pönnur. mbl.is/apartmenttherapy.com

Það fer eng­inn í gegn­um lífið í eld­hús­inu án þess að glíma við potta með áföst­um blett­um sem erfitt er að losna við, og við höld­um að þeir séu komn­ir til að vera – að ei­lífu! En sú er alls ekki raun­in ef marka má þetta hér.

Gaml­ir fast­ir blett­ir á pott­um og pönn­um heyra sög­unni til ef þú ferð eft­ir þessu ein­falda trixi sem við rák­umst á á ver­ald­ar­vefn­um. Þú ein­fald­lega dreg­ur fram borðsalt og hvítt edik og þekur blett­ina með blönd­unni. Láttu standa í nokkr­ar sek­únd­ur og byrjaðu svo að skrúbba með grófu hliðinni á svampi. Skolaðu því næst upp úr volgu vatni og blett­irn­ir ættu að vera á bak og burt.

- - -

Fylgstu með Mat­ar­vefn­um á In­sta­gram. Enda­laus æv­in­týri, hug­mynd­ir, skemmti­leg­ir leik­ir og allt það heit­asta heita ...

Svo megið þið endi­lega tagga okk­ur á In­sta­gram þegar þið eruð að elda eitt­hvað spenn­andi @mat­ur.a.mbl

Salt og hvítt edik er blandan sem þú þarft til …
Salt og hvítt edik er bland­an sem þú þarft til að þrífa pott­ana þína. Mbl.is/ In­sta­gram/​liz.amaya.style
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert