Geggjað brauð fyllt með parmaskinku og mozzarella

Ofsalega gott matbrauð með parmaskinku og mozzarella.
Ofsalega gott matbrauð með parmaskinku og mozzarella. Mbl.is/Vk Stock

Það jafn­ast ekk­ert á við gott mat­brauð sem þú get­ur fyllt af dá­sam­leg­um hrá­efn­um og not­ast við það sem er til í ís­skápn­um hverju sinni. Hér er upp­skrift að brauði með parma­skinku, mozzar­ella og spínati.

Geggjað brauð fyllt með parmaskinku og mozzarella

Vista Prenta

Girni­legt sæl­keramat­brauð

  • 30 g ger
  • 6 dl volgt vatn
  • 4 msk ólífu­olía
  • 2 msk hun­ang
  • 4 msk flögu­salt
  • 5 dl dur­um-hveiti
  • 8 dl gott hveiti

Fyll­ing:

  • 4 hand­fylli spínat
  • 1 msk olía
  • salt og pip­ar
  • 12 parma­skinkusneiðar
  • 2 mozzar­ella­kúl­ur

Aðferð:

  1. Hrærið gerið út í vatnið. Blandið olíu, hun­angi og salti sam­an við ásamt dur­um-hveit­inu. Hnoðið og bætið síðan hveit­inu sam­an við.
  2. Látið hef­ast í klukku­tíma.
  3. Veltið spínatinu upp úr olíu á pönnu og kryddið með salti og pip­ar.
  4. Formið deigið í fern­ing, um senti­metra á þykkt. Dreifið spínatinu yfir og því næst skinku- og mozzar­ella­bit­um.
  5. Rúllið deig­inu upp eins og rúllu­tertu og penslið deigið á sam­skeyt­un­um. Leggið á bök­un­ar­plötu á bök­un­ar­papp­ír og stráið hveiti yfir. Látið brauðið hef­ast í 30 mín­út­ur und­ir viska­stykki.
  6. Bakið við 250 gráður í 5 mín­út­ur – lækkið þá niður í 200 gráður og bakið áfram í 30 mín­út­ur.
  7. Látið brauðið kólna áður en þið pakkið því inn í hreint viska­stykki. Skerið niður með beitt­um hníf.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert