Andrea Magnúsdóttir opnaði sína aðra verslun um helgina – glæsilega skóbúð fyrir allar konur landsins. Hún velur vikumatseðilinn fyrir okkur að þessu sinni sem er vægast sagt girnilegur.
Andrea er fatahönnuður að mennt og hefur rekið verslunina AndreA um árabil í Hafnarfirði, þar sem hún selur eigin hönnun í bland við önnur merki. Síðastliðinn föstudag opnaði hún nýja verslun, eða skóbúð sem er ein sú fallegasta á landinu að okkar mati – fagurbleik frá toppi til táar.
„Eftir langa daga og annasama tíma við að undirbúa opnun á skóbúðinni, og kannski aðeins of mikið take-away, þá væri þessi vikumatseðill draumur. Ég deili uppáhaldspastaréttinum með Mörtu Stewart, einfaldur og góður. Og nautasteik höfum við haft alla föstudaga í mörg ár, hefð sem allir í fjölskyldunni elska,“ segir Andrea.
Nýju skóverslunina má finna í krúttlegu gömlu húsi sem eiginmaður Andreu og arkitektinn Óli Óla, endurhannaði að innan – að Vesturgötu 8 í Hafnarfirði, í næsta húsi við verslunina AndreA við höfnina.
Laugardagur:
- - -
Fylgstu með Matarvefnum á Instagram. Endalaus ævintýri, hugmyndir, skemmtilegir leikir og allt það heitasta heita ...
Svo megið þið endilega tagga okkur á Instagram þegar þið eruð að elda eitthvað spennandi @matur.a.mbl