Byltingarkennd nýjung í þrifum

Ný byltingarkennd þrif-vara í töfluformi.
Ný byltingarkennd þrif-vara í töfluformi. mbl.is/Biobaula

Það er kom­in ný vara á markað sem mun breyta öllu í heim­il­isþrif­un­um hér eft­ir – en þessi ótrú­lega nýj­ung er í töflu­formi.

Marg­ir eru farn­ir að huga að vor­hrein­gern­ing­unni, eða eru komn­ir vel á leið með þrif­in. En eins og marg­ir vita get­ur slíkt haft mik­il áhrif á um­hverfið okk­ar, þá ef við skoðum plast­magnið í öll­um þeim hreinsi­vör­um sem við not­um. Svo ekki sé minnst á kol­efn­is­spor­in sem fara í að flytja vör­urn­ar á milli landa. Allt eru þetta þætt­ir sem hafa áhrif á um­hverfið okk­ar og okk­ur ætti ekki að standa á sama.

Til að sporna við þessu hef­ur BI­OBAULA fram­leitt sjálf­bær­an og spar­neyt­inn val­kost til að koma til móts við al­menn­ar hreinsi­vör­ur. Hér er á ferð veg­an þvotta­efni sem er 100% niður­brjót­an­legt í töflu­formi og eru all­ar vör­urn­ar ECOCERT-vottaðar og bera einnig nýtt FLUST­IX-vott­orð – sem er fyrsta evr­ópska vott­un­in sem trygg­ir að vör­urn­ar séu al­ger­lega laus­ar við örplast. Þar fyr­ir utan hlaut vörumerkið verðlaun sem besta nýja var­an 2020 á vöru­sýn­ingu Bi­oFach og hef­ur vakið mikla at­hygli.

Úrvalið frá BI­OBAULA sam­an­stend­ur af fimm mis­mun­andi vör­um – al­hliða hreinsi­efni, gler­hreinsi­efni, baðhreinsi­efni, gólf­hreinsi­efni og start­pakka. Hægt er að skoða nán­ar og nálg­ast vör­urn­ar HÉR.

mbl.is/​Bi­obaula
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert