Við erum alls ekki hér til að dæma, enda höfum við ekki farið út í þessi þrif sjálf hér á matarvefnum. En það gefur augaleið að ryksuguslangan er haugaskítug og meira en það. Hér sýnum við ykkur hvernig þrífa má slönguna á áhrifaríkan hátt og þú munt horfa öðrum augum á vélina þína eftir þetta.
Svona þrífur þú ryksuguslönguna
- Gakktu úr skugga um að ryksugan sé ekki í sambandi.
- Losaðu slönguna af.
- Notaðu sturtuna til að sprauta vatni inn í slönguna og ef þú átt langan bursta eða álíka til að stinga inn í og losa um óhreinindin, þá skaltu gera það.
- Látið liggja í heitu vatni í baðkari eða bala í 30 mínútur.
- Skolið aftur í sturtunni.
- Láttu alveg þorna áður en þú festir aftur á ryksuguna.
Hér má sjá skítugt vatnið eftir þrif á slöngunni.
Mbl.is/Facebook